Bandaríkjaher sprengdi upp bát á austanverðu Kyrrahafi í gær sem herinn staðhæfir að hafi flutt fíkniefni.
Tveir voru drepnir í árásinni, að því er segir í færslu aðgerðarstjórnar hersins á samfélagsmiðlinum X. Færslunni fylgir myndskeið af bátnum á siglingu áður en hann er sprengdur í loft upp.
Árásir Bandaríkjahers hafa verið gagnrýndar af alþjóðlegum mannréttindasamtökum sem líkja aðgerðunum við aftökur án dóms og laga. Þá hafa Sameinuðu þjóðirnar sagt árásirnar óásættanlegar.
Í það minnsta 207 hafa verið drepnir í árásum sem þessum frá því þær hófust í september, að því er segir í frétt The Guardian.