Einhverjir hermenn til viðbótar hlutu minniháttar meiðsli og hafa þegar snúið aftur til starfa.
Nöfn hinna látnu hafa ekki verið gefin upp og ekki hefur verið gefin upp nákvæm staðsetning árásarinnar, aðeins að hún hafi átt sér stað í Jórdaníu og að hinir særðu hafi verið fluttir á sjúkrahús þar í landi.
Jórdönsk yfirvöld sögðu fyrr í dag frá því að þeim hefði tekist að stöðva tíu eldflaugar sem skotið hafði verið frá Íran. Ekkert var tekið fram um skaða sem af árásum hefði hlotist í tilkynningunni.
Samkvæmt írönskum ríkismiðlum sagði Íranski byltingarvörðurinn frá því í dag að hann hefði grandað í það minnsta tveimur orrustuþotum í Jórdaníu.
Átök milli Írans annars vegar og Bandaríkjanna og Ísrael hins vegar hafa undið upp á sig síðustu vikuna. Vopnahlé hafði þá ríkt milli deiluaðila, að nafninu til, í tæpan mánuð.
Æðstiklerkur Írans, Mojtaba Khamenei, sagði í skriflegri yfirlýsingu að deginum ljósara væri að undirskrift forseta Bandaríkjanna væri merkingarlaus með öllu. Khamenei hefur ekki sést opinberlega síðan í upphafi stríðsins þegar loftárásir voru gerðar á heimili æðstaklerksins, föður hans heitins, Ali Khamenei, sem urðu honum aldurtila.