Einn var handtekinn vegna líkamsárásar í Mosfellsbæ og fluttur á lögreglustöð í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar. Annar var handtekinn í Kópavogi vegna líkamsárásar og eignaspjalla og vistaður í fangaklefa.
Lögregla hafði einnig afskipti af einstaklingi í hverfi 108 í Reykjavík sem reyndist eftirlýstur fyrir fjölda brota. Hann var því handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Hafnarfirði var einstaklingur handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa verið gripinn við að stela úr görðum. Par í annarlegu ástandi sökum áfengis- og fíkniefnaneyslu var til vandræða í miðborginni og var vísað á brott af lögreglu.
Þá var vörubifreið með krana ekið á göngubrú með þeim afleiðingum að talsverðar skemmdir urðu á krananum og göngubrúnni. Svo virðist sem ökumaður vörubílsins hafi gleymt að setja niður kranann með fyrrgreindum afleiðingum. Áreksturinn átti sér stað í Hafnarfirði eða Garðabæ, en ekki er tilgreint nánar hvar eða hvenær áreksturinn átti sér stað.