Áttatíu ár eru frá því að síðasti hluti Íslandsklukku nóbelsskáldsins Halldórs Kiljans Laxness kom út. Um helgina verður sagan lesin í heild sinni í Gljúfrasteini, húsi skáldsins, en lesturinn mun standa í rúmar 20 klukkustundir og koma 22 listamenn að honum.
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, formaður stjórnar Gljúfrasteins, segir hugmyndina hafa kviknað hjá öðrum stjórnarmanni, Hafliða Arngrímssyni leikstjóra, en hann kom að því þegar rannsóknarskýrsla Alþingis um fjármálahrunið var lesin upp í heild sinni í Borgarleikhúsinu á sínum tíma.
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
„Hann var aðeins að rifja það upp og þá fékk hann þá flugu í höfuðið að það væri nú kannski gaman að fylgja því módeli en í þetta skipti með Íslandsklukku Halldórs Laxness og að gera það í vorinu á Gljúfrasteini,“ segir Ingibjörg.
„Við erum búin að fá alveg stórkostlegan hóp af lesurum sem ætla að vera frá morgni til kvölds, á laugardegi og sunnudegi, að lesa Íslandsklukkuna frá upphafi til enda.“
Einvalalið listamanna
Dagskráin hefst klukkan 10 báða daga og stendur til 21. Meðal lesara eru leikararnir Sólveig Arnarsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Björn Thors og Þorsteinn Bachmann, þá mun barnabarn og nafni skáldsins Halldór Laxness Halldórsson sömuleiðis spreyta sig á lestrinum sem og Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri og rektor LHÍ.
Spurð út í erindi Íslandsklukkunnar í nútímanum segir Ingibjörg: „Klassísk bókmenntaverk eiga við á öllum tímum og ég held að það sé mjög margt í Íslandsklukkunni sem er áhugavert í dag. Bæði eru þar einhverjir speglar sem er hægt að eiga í samtímanum en svo eiga góð listaverk alltaf erindi, burtséð frá því hvað er að gerast í heiminum. Þá á karakterinn og ástandið í listaverkinu erindi í sjálfu sér.“
Öðruvísi upplifun
Þá segir hún að upplestur eins og sá sem boðið verður upp á um helgina verði öðruvísi bókmenntaupplifun en flestir hafa vanist. „Auðvitað nýtur maður bókmennta kannski oftast í einrúmi, annaðhvort les maður þær sjálfur eða hlustar á þær á einhverri streymisveitu eða hvernig sem það er,“ segir Ingibjörg.
„En það er aðeins öðruvísi tilfinning að sitja í rými með fullt af fólki og það sé verið að lesa fyrir mann. Það er bara nokkuð sem margir hafa ekki upplifað síðan þeir voru börn.“
Hún bætir við að stofan á Gljúfrasteini sé líka sérlega vel til þess látin að hýsa upplestur sem þennan. „Svo nálgast lesararnir þetta svo ofboðslega fallega og gjöfult og brenna svo fyrir þessu efni og eru svo til í að taka þetta að sér. Þannig að það er einhver eldmóður í þessu yfirvegaða verkefni, sem er voða fallegt.“
Hægt að stoppa stutt
Þetta er samtals rúmlega 20 klukkustunda dagskrá. Gerið þið ráð fyrir að fólk sitji allan tímann eða komi og fari?
„Nei, þetta er bara algjörlega opið til þess að renna við hvenær sem manni dettur í hug og stoppa eins stutt eða lengi og hverjum sýnist. Þannig að þeir heitustu geta komið og hlustað frá upphafi til enda en svo er ekkert að því að kíkja í korter og sjá hvernig stemningin er, fá sér bara kaffibolla á hlaðinu,“ segir Ingibjörg.
Hafið þið engar áhyggjur af því að lesturinn taki annaðhvort lengri eða styttri tíma en dagskráin gerir ráð fyrir?
„Nei. Það er búið að skipuleggja þetta og tímasetja nokkuð vel og lesararnir eru búnir að hita sig upp. Ég held að þetta eigi bara eftir að renna vel.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.