Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að krefja Evrópuþjóðir um endurgreiðslu á þeim stuðningi sem Bandaríkin veittu Úkraínu í tíð Joes Bidens, forvera hans á forsetastóli.
„Úkraína og NATO fengu hundruð milljarða dollara að gjöf, ókeypis, sem Evrópa hefði borgað – ef hún hefði verið beðin um það. En við ætlum að biðja um að fá þann pening til baka, að vísu svolítið seint,“ sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Trump Social.
Þetta skrifaði Trump í færslu þar sem hann vísaði á bug fréttum um að vopnabúr Bandaríkjahers hefði verulega látið á sjá meðan á stríðinu við Íran hefur staðið. Fjölmiðlar hafa flutt fréttir af því að birgðir hersins af ýmsum skotfærum séu orðnar það litlar að það valdi stjórnendum hersins áhyggjum.
Trump sagði að Bandaríkin hefðu látið Úkraínu hafa miklu meiri hergögn í valdatíð Bidens en notuð hefðu verið í stríðinu við Íran.
Bandaríkin veittu Úkraínu hernaðaraðstoð eftir að Rússar réðust inn í landið 2022. Eftir að Donald Trump tók við af Biden tóku þau að rukka Evrópuríki fyrir þann hernaðarbúnað sem sendur var til Úkraínu.
Ekki kemur fram í færslu Trumps hvaða Evrópuríki hann telji að eigi að borga fyrir þann stuðning sem bandarísk stjórnvöld veittu Úkraínu, né á hvaða grundvelli. Trump hefur verið hugleikið að Evrópuríki beri kostnaðinn af stuðningi við Úkraínu frekar en að Bandaríkin geri slíkt.
Snemma í forsetatíð Trumps kom til rifrildis milli hans, JD Vance varaforseta og Volodomyrs Zelenskys, forseta Úkraínu, þegar sá síðastnefndi kom til Washington til að þrýsta á um aðstoð Bandaríkjanna til að verjast árásum Rússa.