Trump vill lögmann sinn sem dómsmálaráðherra til frambúðar
Todd Blanche var persónulegur lögmaður Trump og tók tímabundið við ráðuneytinu eftir að Trump rak dómsmálaráðherrann. Nú boðar forsetinn að hann muni festa stöðu Blanche sem dómsmálaráðherra í sessi.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í gær ætla að tilnefna fyrrverandi einkalögfræðing sinn sem dómsmálaráðherra til frambúðar.
Todd Blanche gegnir nú starfi settur yfirmaður dómsmálaráðuneytisins eftir að Trump rak Pam Bondi dómsmálaráðherra í kjölfar gagnrýni á meðferð hennar á birtingu rannsóknarskjala varðandi kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Blanche, sem var áður næstráðandi í dómsmálaráðuneytinu, hefur síðan sótt meinta óvini Trumps til saka, þar á meðal James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI.
Trump sagði gestum í kvöldverði í Hvíta húsinu að hann hygðist formlega tilnefna Blanche í embættið á fimmtudag, samkvæmt myndefni sem embættismaður í Hvíta húsinu deildi á samfélagsmiðlum.
„Á morgun mun ég gefa fyrirmæli um ... að við ætlum að gera hann að fastráðnum dómsmálaráðherra,“ sagði Trump í myndskeiðinu sem Dan Scavino, aðstoðarstarfsmannastjóri Trumps, deildi.
Blanche hefur stýrt dómsmálaráðuneytinu á meðan það reynir að koma á umdeildri áætlun um að stofna 1,8 milljarða dala bótasjóð sem gagnrýnendur fordæmdu sem „leynisjóð“ fyrir …