Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að þrýsta á Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels til að svara ekki árásum Íranshers á Ísrael. Axios greinir frá.
Í samtali við Financial Times segir Bandaríkjaforseti að Ísraelar verði að sætta sig við niðurstöður samningaviðræðna milli Írans og Bandaríkjanna. „Hann hefur ekkert um það að segja,“ sagði Trump og vísaði þar til Netanjahús. „Ég stýri för. Ég stýri förinni alfarið. Hann gerir það ekki.“
Trump sagði árásirnar í kvöld ekki hafa haft áhrif á vilja sinn til að semja við Írana.
Íranar hafa lengi sagt að friðarsamningur við Bandaríkin sé háður því að vopnahlé haldi í Líbanon. Þrátt fyrir að Ísraelar og Líbanar hafi oft samið um vopnahlé með milligöngu Bandaríkjanna, nú síðast í liðinni viku, þá hafa árásir Ísraelshers á skotmörk í Líbanon haldið áfram.
Ísraelsher gerði árásir á suðurhluta Beirút fyrr í dag. Íransher svaraði fyrir sig með áðurnefndum árásum á norðurhluta Ísraels í kvöld.