Trump skerðir verndarsvæði til að opna á námuvinnslu
Bandaríkjaforseti hefur opnað á námugröft og olíuvinnslu á náttúruverndarsvæðum á stærð við þriðjung flatarmáls Íslands. Um leið endurskilgreinir hann skaða á náttúru.
Donald Trump forseti undirritaði í gær forsetatilskipanir sem fela í sér að tvö friðuð svæði í Utah verða minnkuð niður í um það bil einn tíunda af núverandi stærð. Þar með verða milljónir hektara af vernduðu landi opnaðar fyrir vinnslu jarðefnaeldsneytis og námuvinnslu.
Trump undirritaði yfirlýsingarnar á fundi í Hvíta húsinu ásamt embættismönnum Repúblikanaflokksins, þar á meðal ríkisstjóra Utah og tveimur öldungadeildarþingmönnum, sem sögðu aðgerðina vera löngu tímabæra leiðréttingu á ofríki alríkisstjórnarinnar.
„Við erum að gera eitthvað mjög róttækt og mjög mikilvægt fyrir íbúa Utah og þjóð okkar,“ sagði Trump.
„Þessar tilnefningar friðaðra svæða eiga að ná yfir „minnsta mögulega svæði“ til að vernda fornminjar og þessi margra milljóna hektara svæði sem eru stærri en Delaware-fylki falla svo sannarlega ekki undir þá skilgreiningu,“ bætti Spencer Cox, ríkisstjóri Utah, við.
„Okkur er svo sannarlega annt um að vernda þessar fornminjar og munum halda því áfram,“ bætti hann við.
Aðgerðin vekur upp deilu sem hefur staðið í meira en áratug.
Trump beindi upphaflega sjónum sínum að þessum tveimur verndarsvæðum á fyrsta kjörtímabili sínu árið 2017, áður en eftirmaður hans, Joe Biden, endurheimti upprunaleg mörk þeirra árið 2021.
Sú fyrri minnkun fól í sér að Bears Ears-þjóðgarðurinn var minnkaður um 85 prósent og Grand Staircase-Escalante um 45 prósent. Að þessu sinni er niðurskurðurinn enn meiri, eða 91 prósent og 90 prósent. Landsvæðið samsvarar tæplega þriðjungi flatarmáli Íslands.
Í nýju forsetatilskipununum var listi yfir mikilvæg steinefni og orkulindir sem sagðar voru nauðsynlegar fyrir auðlindasjálfstæði og þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
Þetta er það nýjasta í víðtækara mynstri þar sem verndun almenningssvæða og dýralífs er afnumin til hagsbóta fyrir námuiðnað og aðra nýtingu. Í síðustu viku lauk stjórnin við að setja reglu sem endurskilgreinir orðið „skaði“ samkvæmt lögum um tegundir í útrýmingarhættu þannig að eyðilegging búsvæða er undanskilin.
Mismunandi tegundir af vernduðum svæðum í Bandaríkjunum. Þannig eru þjóðgarðar (e. national park) stofnaðir af þinginu, en svokallaðir þjóðarminnisvarðar (e. national monument) stofnsettir með forsetatilskipunum.
Víst að málið fari fyrir dómstóla
Grand Staircase-Escalante, sem er ríkt af jarðefnaeldsneyti og nær yfir 1,9 milljónir hektara, var stofnað sem þjóðarminnisvarði árið 1996 undir stjórn þáverandi forseta, Bill Clinton. Bears Ears, sem nær yfir 1,35 milljónir hektara, var lýstur minnisvarði árið 2016 undir stjórn Barack Obama forseta á grundvelli menningarlegra staða sem eru heilagir frumbyggjaættbálkum.
Andstæðingar halda því fram að aðgerðir Trumps séu ólöglegar samkvæmt fornminjalögunum frá 1906.
„Það er kristaltært: Orðalag laganna veitir forsetanum vald til að stofna þjóðarminnisvarða,“ sagði Thomas Delehanty, lögmaður Earthjustice, í samtali við AFP. „Það felur ekki í sér samsvarandi vald til að minnka eða afnema þjóðarminnisvarða. Þess í stað getur aðeins þingið gert það, með samþykkt nýrra laga.“
En dómsmálaráðuneyti Trumps gaf út álit á síðasta ári þar sem fram kom að forsetar gætu ekki aðeins minnkað minnisvarða heldur afnumið þá með öllu.
Earthjustice höfðaði mál gegn fyrri ríkisstjórn Trumps vegna málsins fyrir hönd náttúruverndarsamtaka og Delehanty sagði að þau væru reiðubúin að endurvekja þá málsókn eða höfða nýtt mál.
Utah, þar sem Repúblikanaflokkurinn er við völd, hefur á meðan höfðað mál þar sem endurheimt minnisvarðanna af hálfu Bidens er véfengd.
Athan Manuel, forstöðumaður landverndaráætlunar Sierra Club, sagði í samtali við AFP að almenningssvæði væru „hluti af þjóðareinkennum Bandaríkjanna“, drægju að ferðamenn og ýttu undir hagvöxt á afskekktum svæðum og yrðu þannig „endurnýjanleg efnahagsauðlind“.