Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að settir verði 50% tollar á fjölda kanadískra vara sem fluttar eru til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hvíta húsinu. Að mati forsetans hafa kanadísk stjórnvöld mismunað bandarískum vörum eins og bílum, áfengi og mjólkurvörum á óréttlátan hátt.
Gert er ráð fyrir að tollarnir taki gildi eftir 30 daga. Meðal þess sem bandarísk stjórnvöld ætla að setja tolla á eru vín, hokkíkylfur og sement. Tollar verða einnig settir á vörur sem nutu verndar undir fríverslunarsamningi Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó.
Nýju tollarnir taka ekki til orkuframleiðslu, fisks, mikilvægra steinefna og kalíums. Vörur sem eru þegar tollskyldar og miða að því að stuðla að þjóðaröryggi, svo sem stál og ál, eru einnig undanskildar.
Nú þegar eru Bandaríkin með um 15 til 30% tolla á kanadísku stáli, áli og kopar. Einnig eru 35% tollar á timbur frá Kanada auk 25% tolla á íhluti í bíla sem ekki eru framleiddir í Bandaríkjunum.
Í tilkynningunni frá Hvíta húsinu sagði að Trump væri að grípa til aðgerða til að draga Kanada til ábyrgðar „fyrir áframhaldandi mismunun og ósanngjarna og ójafna meðferð á bandarískum vörum sem hafi lagt byrðar á duglega Bandaríkjamenn og sett þá í óhagstæða stöðu.“
Tollarnir auka enn á spennu milli ríkjanna
Kanada er ein nánasta viðskiptaþjóð Bandaríkjanna en spenna milli ríkja hefur verið þónokkur síðan Trump tók aftur við forsetaembættinu í fyrra. Þessi ákvörðun hans eykur enn á spennuna milli nágrannaríkjanna, hætta er á að samband ríkjanna súrni enn frekar og verðbólga hækki.
Stjórnvöld í Kanada voru ein fárra í heiminum sem settu hefndartolla á vörur frá Bandaríkjunum eftir að Trump tilkynnti að hann ætlaði að hækka tolla á innfluttar vörur frá öllum heimshornum í apríl í fyrra.
25% gjald var sett á bandarískar vörur sem fluttar voru inn til Kanada frá Bandaríkjunum, meðal annars stál, ál og bifreiðar. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, felldi síðar niður gjaldið á hluta varanna.
Carney sagði í yfirlýsingu að ríkisstjórn hans hefði sett fram ítarlegar tillögur til að leysa viðskiptadeilur ríkjanna tveggja og fullyrti að fyrri tollar Trumps brytu gegn viðskiptasamningi þeirra.
„Þessi viðskiptadeila hefur aukið kostnað fyrir fjölskyldur, sérstaklega í Bandaríkjunum. Kanada er reiðubúið til að taka af krafti á óleystum málum við Bandaríkin með hagsmuni almennings beggja ríkja í fyrirrúmi.“