Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ánægður með að Harry Bretaprins og Meghan Markle hafi yfirgefið Bandaríkin og flutt til Bretlands. Hann segir einnig að hefði hann verið hluti af bresku konungsfjölskyldunni hefði hann ekki tekið við þeim aftur.
„Ég er ánægður með það. Ég var ekki aðdáandi,“ sagði Trump við blaðamenn á forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu í kvöld.
Harry og Meghan fluttu aftur til Bretlands í síðustu viku. Hjónin höfðu búið í Montecito í Kaliforníu frá árinu 2020 og sögðu þá skilið við konungleg störf, en eru nú sögð ætla að dvelja í Bretlandi um lengri tíma.
Segir þau hafa sýnt konungsfjölskyldunni vanvirðingu
Trump sagðist ekki hafa verið hrifinn af framkomu hjónanna eftir að þau sögðu skilið við konunglegar skyldur og fluttu til Bandaríkjanna.
„Mér líkaði það ekki. Mér líkaði ekki hvernig hún hagaði sér. Mér fannst hún sýna drottningunni og Karli konungi hræðilega vanvirðingu,“ sagði Trump um Meghan.
Samband Harrys við föður sinn virðist hafa batnað á síðustu misserum og hafa þeir hist í heimsóknum Harrys til Bretlands. Karl Bretakonungur glímir nú við krabbamein.
Samskipti Harrys við eldri bróður hans, Vilhjálm Bretaprins, virðast hins vegar enn vera stirð. Harry og Meghan hafa áður gagnrýnt konungsfjölskylduna opinberlega, meðal annars í viðtölum, heimildarþáttum og ævisögu sinni.
Trump segist sjálfur ekki hafa verið jafn fyrirgefandi og konungsfjölskyldan. „Kannski er ég öðruvísi. Ég hefði ekki tekið hann inn [í fjölskylduna] aftur. Ef ég væri konungsfjölskyldan hefði ég ekki tekið hann aftur,“ sagði hann.