Viðurkenndir söluaðilar Toyota frumsýna nýjan rafmagnsbíl á morgun, laugardag.
Bíllinn nefnistbZ4X Touring, sem er stærri og enn öflugri en bZ4X sem þegar hefur verið á markaði hér á landi.
Með Touring-útgáfunni tekur Toyota næsta skref með enn meira rými og aukinni afköstum, að því er segir í tilkynningu, þar sem bent er á að bíllinn sé fullkominn kostur fyrir fjölskyldur og þá sem vilji nýta rafbíla til ferðalaga um landið.
Fjórhjóla- eða framhjóladrifinn
Fjórhjóladrifinn bZ4X Touring skilar allt að 380 hestöflum, fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 4,4 sekúndum og býður upp á allt að 479 km drægni.
Einnig er bíllinn fáanlegur með framhjóladrifi, með 224 hestöflum, 7,2 sekúndur í 100 km/klst og allt að 591 km drægni.
Í báðum útgáfum er bZ4X Touring með 669 lítra farangursrými, sem er sagður gera hann sérstaklega hentugan fyrir fjölskyldur, útivist og daglega notkun.
Opið verður frá kl. 12 til 16 hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Selfossi og Akureyri og er gestum boðið að kynna sér bílinn þar nánar.
Bíllinn var tekinn til reynsluaksturs fyrr í mánuðinum:
