Tónleikum bandaríska rapparans Kanye West, sem áttu að fara fram þann 18. júlí á Pulse of Gaia-hátíðinni í Reggio Emilia á Norður-Ítalíu, hefur verið aflýst af öryggisástæðum.
Ákvörðunin var tekin í kjölfar fjölda beiðna frá íbúum Emilia-Romagna héraðsins, sér í lagi gyðingasamfélagsins, að sögn Salvatore Angieri héraðsstjóra.
Þá var tónleikum bandaríska rapparans Travis Scott, sem áttu að fara fram deginum áður, einnig aflýst.
Raunveruleg hætta á mótmælum
Angieri segir ákvörðunina hafa verið tekna af öryggisástæðum, búist er við fjölmörgu fólki á hátíðina,
„Við heildarmat vó það einnig þungt að fyrri tónleikum bandaríska rapparans hafði verið aflýst í öðrum löndum og að raunveruleg hætta væri á mótmælum,“ sagði Angieri.
West hefur áður verið gagnrýndur fyrir hatursfulla orðræðu í garð gyðinga og hefur sagst vera nasisti. Gaf hann jafnframt út lagið Heil Hitler í fyrra, þar sem hann lofsamar Adolf Hitler.
West hefur verið meinað að koma fram í Bretlandi, Frakklandi, Póllandi og Sviss.