Í það minnsta tólf voru drepnir og 21 særðist þegar Rússar réðust að Kyiv, höfuðborg Úkraínu, og nágrenni hennar með eldflaugum og drónum.
Sex lestarstarfsmenn voru drepnir þegar eldflaug sprakk á birgðastöð járnbrautanna. Miklar skemmdir urðu á birgðastöðinni og verkstæði sem þar er eyðilagðist í árásinni.
Átta voru drepnir í Kyiv og fjórir í nágrenni borgarinnar, meðal annars í fjölbýlishúsi í Boryspil. Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði að 50 íbúar hefðu verið fluttir á brott eftir árásina.
Zelensky ítrekaði þörfina fyrir öflugar loftvarnir.
Rússneska varnarmálaráðuneytið sagðist hafa gert víðtækar árásir á Úkraínu. Það sagðist hafa ráðist á iðnað sem tengdist hergagnaframleiðslu og á innviði í Odesa-héraði.
Árásirnar í nótt voru gerðar í aðdraganda þess að börn mæta aftur í skólann eftir sumarfrí.