Í oddvitaumræðum Kópavogs var tekist á um Kópavogsmódelið sem tekið var upp í bæjarfélaginu á kjörtímabilinu. Það felur í sér að sex tíma vistun er gjaldfrjáls í leikskólum Kópavogsbæjar en vistun umfram það felur í sér meiri kostnað en áður.
Oddvitar Viðreisnar og Samfylkingar vilja lækka leikskólagjöldin í bænum. Það vill oddviti Sósíalista, Markús Candi, einnig. Hann segir núverandi kerfi brautryðjandi en að ráðast mætti í breytingar.
María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, vill að komið verði til móts við börn sem bíða eftir leikskólaplássi með auknum fjárstuðningi.
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, segir leikskólagjöld í Kópavogi þau hæstu á landinu og vill auka systkinaafslátt. „Það er alveg klárt að það þarf að endurskoða gjaldtökuna,“ segir hann.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks, segir hins vegar að kostnaðarþátttaka foreldra sé í kringum 10 prósent og hafi alltaf verið. Verið sé að sjá árangur með Kópavogsmódelinu. Hún segir leikskólagjöld í bæjarfélaginu svipuð og í Garðabæ og í Kópavogi séu engir lokunardagar.
María Ellen skaut þar inn í og sagði enn lokunardaga í Kópavogi, en að þeir væru nú fyrirfram ákveðnir.
Orri Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, segir meirihluta bæjarstjórnar sammála um Kópavogsmódelið og hann er stoltur af því. Kerfið sé þó ekki heilagt. „Ég er stoltur af Kópavogsmódelinu. Við höfum slegið tóninn í leikskólamálum á landsvísu.“ Hann skorar þó á aðila vinnumarkaðarins að koma sterkar inn í leikskólamál. Þau séu frekar sniðin að þörfum hans frekar en fjölskyldna.
Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins, segir Kópavogsmódelið vera ákveðinn plástur. Hann fagnar því að ráðist hafi verið í stórar breytingar en bendir á að verðmiðinn geti verið öryggi barna, sem sé ógnað ef fullnægjandi mönnun er ekki tryggð.
Oddviti Vinstri grænna og óháðra vill skoða að gera síðasta árið í leikskóla gjaldfrjálst. Með því væri hægt að færa það í átt að því að verða að raunverulegu fyrsta skólastigi.
Horfa má á umræðurnar í heild sinni í spilaranum hér að neðan: