Betur fór en á horfðist þegar vorhret skall á Austurlandi í gær, segir bóndi á Borgarfirði eystra. Gul viðvörun var í gildi fram á kvöld og vetrarfærð var á vegum í landshlutanum. Bændur þurftu að hýsa sauðfé meðan veðrið gekk yfir.
Jón Sigmarsson, bóndi á Desjarmýri, segir að mikið hafi snjóað en að veðrið hafi reynst töluvert skárra en í júníhretinu fyrir tveimur árum.
„Þá var náttúrulega bara bylur og mjög kalt og hvasst. En þó að það hafi snjóað og sé hvítt núna þá var þetta aldrei neitt hart veður. Það var ekki mikill vindur með þessu,“ segir Jón.
Jóni og fjölskyldu á Desjamýri tókst að koma öllu fé í skjól, alls um 500 kindum og 800 lömbum, sumum í útiskýlum og öðrum inn
„En ég er farinn að huga að því núna að koma því út aftur því það er ekki gott að lambfé, sem er búið að vera úti, að hafa það lengi inni. Svo held ég nú að það eigi að fara að hlýna og þetta eigi að fara að smá lagast. Ég held að maður verði bara að vera bjartsýnn á framhaldið.“