Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði tvo menn fyrir helgi af ákæru um að hafa reynt að skipta fölsuðum seðlum í banka. Mennirnir mættu með það sem virtust vera fjórir 100 bandaríkjadala seðlar en reyndust vera gervipeningar.
Seðlarnir voru ekki sannfærandi fölsun. Þeir voru allir með sama raðnúmerið, á þá vantaði öryggisatriði sem eru á raunverulegum seðlum og loks stóð á þeim „USE FOR JOSS PAPER ONY“. Hið síðastnefnda er vísun í gervipeninga sem framleiddir eru í Kína, seldir í bunkum og gjarnan brenndir við athafnir á borð við jarðarfarir og hátíðir.
Þar sem á að standa „The United States of America“ á löglegum gjaldmiðli stóð „ABODE OF THE DEAD BANK“.
Mennirnir mættu ásamt konu í banka í Kópavogi 4. júlí í fyrra. Þetta voru ungur maður, afi hans og dóttir eldri mannsins. Gjaldkeranum fannst áferð peninganna skrýtin og renndi þeim í gegnum talningarvél sem nemur meðal annars hvort peningar séu löglegir eða falsaðir. Hún greindi fólkinu frá því að peningarnir væru falsaðir og kom það því á óvart. Að því búnu fór fólkið.
Nokkrum dögum síðar hófst rannsókn lögreglu. Henni lauk með því að mennirnir voru ákærðir. Afinn sagðist lítið vita um uppruna peninganna. Afasonurinn sagðist hafa fundið þá í veski þar sem hann stundaði æfingar. Þegar enginn vitjaði þeirra tók hann þá með sér. Hann neitaði því að hafa vitað að seðlarnir væru ekki löglegur gjaldmiðill. Hann kvaðst ekki vera klikkaður og hefði því aldrei farið með afa sinn í bankann ef hann hefði grunað að hann væri með falsaða seðla.
Dómari sýknaði mennina. Hann sagði að þar sem rannsókn lögreglu hófst ekki fyrr en tíu dögum eftir að fólkið mætti með seðlana í bankann hefðu ýmsar rannsóknaraðferðir farið forgörðum, þar á meðal húsleit og skoðun rafrænna gagna.
Frásögn unga mannsins af því hvernig hann fann peningana var með nokkrum ólíkindum en ekki fráleit, sagði dómarinn. Hann sagði ekki gefið að maðurinn áttaði sig á því að seðlarnir væru falsaðir. Dómari sagði að ef unga manninum hefði verið ljóst að seðlarnir væru falsaðir þá hefði honum verið í lófa lagið að reyna að skipta þeim annars staðar, svo sem á veitingahúsi þar sem þekkt sé að tekið sé við erlendu fé.
Fölsuðu seðlarnir voru gerðir upptækir og verjendum mannanna greidd samtals 2,1 milljón króna í málsvarnarlaun úr ríkissjóði.