Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vill ekki tjá sig um bótakröfur sem Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson, sem nýverið voru sýknaðir af ákæru vegna hryðjuverka, kunna að hafa uppi gagnvart ríkinu.
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, sagði í samtali við mbl.is eftir að ríkissaksóknari ákvað að óska ekki eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í málinu að bótakröfur þeirra gætu hlupið á tugum milljóna.
Spurð hvort hún sé sammála fullyrðingu verjandans og hvort hún telji að mögulega þurfi einhver að sæta ábyrgðar vegna málarekstursins segir ráðherrann:
„Ég held að ég passi bara á það. Menn eru mögulega að fara sækja sér bætur og þá ætla ég ekki að vera að anda ofan í hálsmálið á ríkislögmanni eða dómstólum um hvernig eigi að fara með það.“