Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að hrunvarnirnar hafi nýlega verið settar upp á um þrjú hundruð metra kafla þar sem mikil hætta er á grjóthruni. Tilgangur þeirra sé að auka öryggi vegfarenda á þessum stað.
„Áætlað er að steinninn sé um tíu tonn að þyngd og því mun stærri en algengast er að hrynji úr fjallinu. Við hönnun varnanna var miðað við steina á bilinu þrjú til fjögur tonn. Steinninn er jafnframt mun stærri en sá sem olli banaslysi á þessum stað í mars 2025.
Vegagerðin lítur atvikið alvarlegum augum og er að skoða skemmdirnar. Gatið í veggnum verður lokað til bráðabirgða og í framhaldi verður metið hvað þarf að gera til að tryggja öryggi vegfarenda,“ segir á vef Vegagerðarinnar.