Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur - Vísir

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur - Vísir

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur - Vísir

Hér að neðan ber að líta tíu hluti um Hildi Björnsdóttur sem eru ekki á allra vitorði nema kannski allra hörðustu aðdáendanna.

1. Fegurðardrottning unga fólksins og borgarverkfræðingur

Hildur Björnsdóttir er dóttir Katrínar Gísladóttur húsfreyju og Björns Inga Sveinssonar, byggingatæknifræðings og fyrrverandi borgarverkfræðings; á tvo eldri bræður og þrjú yngri systkini og fæddist í San Francisco 11. júní 1986.

Katrín og Björn eru frá ólíkum landshlutum, Björn ólst upp á Leifsgötunni í Reykjavík og gekk í Verslunarskólann en Katrín er að norðan og gekk í Menntaskólann á Akureyri. 

Þess ber að geta að þegar Katrín var átján ára gömul tók hún þátt í Fegurðarsamkeppni Íslands í Háskólabíói þann 26. maí 1972 og var kjörin „fegurðardrottning ungu kynslóðarinnar“ það kvöldið.

Morgunblaðið fjallaði um keppnina og ræddi við Katrínu um úrslitin. Þar kom fram að Katrín væri í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík og hefði fengið aðeins fárra daga frí frá próflestri til þess að geta takið þátt í keppninni. 

„Æ, mér líður hálf skringilega“, sagði Katrín við Morgunblaðið að keppninni lokinni. „Ég tók þátt í þessari keppni til tilbreytingar, en átti alls ekki von á því að sigra, hvað þá að bera tvo borða.“ Katrín greindi frá því að hún myndi vinna á skrifstofu Útgerðarfélags Akureyringa um sumarið en ekki fylgdi sögunni hvort hún ætlaði að keppa um titilinn Miss Young International í Japan í júnímánuði.

Katrín kynntist svo Birni Inga, sem átti soninn Svein úr fyrra sambandi, og þau fluttu saman til Bandaríkjanna árið 1977 þar sem Björn fór í meistaranám í jarðskjálftafræðum. Hjónin bjuggu í tólf ár í Bandaríkjunum, eignuðust Hildi og eldri bróður hennar, Gísla Konráð, og fluttu aftur til Íslands 1989. 

Hildur Björnsdóttir með foreldrum sínum, Birni Inga Sveinssyni og Katrínu GísladótturHåkon Broder Lund

Þau bjuggu í Reykjavík í eitt ár en fluttu svo til Hafnarfjarðar þar sem Hildur var búsett til tvítugs þangað til hún fékk inni á Stúdentagörðum. Eftir heimkomuna eignuðust hjónin þrjú börn til viðbótar: Björn Inga, Áslaugu og Ragnheiði.

Samkvæmt heimildum Vísis fetaði Hildur fjórtán ára í fegurðarsamkeppnifótspor móður sinnar þegar hún tók þátt í sumarstúlkukeppni Eskimomodels á Gauk á Stöng 1. september 2000. Veittir voru tveir titlar, sumarstúlka og netstúlka Eskimomodels. Netstúlkan var valin í almennri kosningu á Vísi en dómnefndin sá um val á sumarstúlkunni. Halla Björk Jósefsdóttir endaði sem netstúlkan en Hildur Björnsdóttir sem sumarstúlkan.

2. Gerði gælunafnið að einkanúmeri

„Systkini mín og frændfólk kalla mig Iddú. Ég hef haft það gælunafn frá því ég var barn og þykir vænt um það,“ sagði Hildur um sitt eftirlætis gælunafn í Oddvitaáskorun Vísis fyrr á árinu.

Ekki nóg með að vera kölluð Iddú heldur var Hildur um tíma með einkamerkið Iddú á bílnúmeraplötu sinni meðan hún var í Verzlunarskólanum.

3. Stalst í bíl foreldranna og klessti á hús

Hildur ljóstraði einnig upp um mistök sem hún hefur gert á ævi sinni í sömu Oddvitaáskoruninni.

„Ég stalst til að taka bíl foreldra minna um miðja nótt til að skutla vinkonu minni heim þegar ég var nítján ára. Á heimleiðinni rann ég í hálku og klessti á hús. Það var ekki skemmtilegt að vakna morguninn eftir,“ sagði Hildur um mistökin.

Hildur Björnsdóttir varð fyrst borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík árið 2018.Vísir

4. Hrafnista, Sjóvá, sambýli og lögmennska

Hildur var í Verzlunarskólanum frá 2003 til 2006, sat þar í ritstjórn Verzlunarskólablaðsins og var formaður MORFÍS. Hún fór síðan í Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með BA-gráðu í stjórnmálafræði og bæði BA- og MA-gráðu í lögfræði á fimm árum.

Hildur var til viðtals í Fréttablaðinu árið 2009, þá formaður Stúdentaráðs og ekki orðin móðir.

Í háskólanum fékk Hildur smjörþefinn af pólitík með virkri þáttöku í hagsmunabaráttu stúdenta þar sem hún sat í stjórn Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, og var formaður Stúdentaráðs frá 2009 til 2010.

Áður en Hildur fór út í borgarpólitíkina starfaði hún við ýmislegt. Hún vann í þrjú ár Hrafnistu meðan hún var í menntaskóla og vann á svipuðum tíma við tryggingaráðgjöf hjá Sjóvá.

Hildur ljóstraði einmitt upp um það í sjónvarpsþættinum Af vængjum fram á Sýn í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga að það vandræðalegasta sem hún hefði þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð.

Meðan hún var í háskólanum vann Hildur á sambýli og þegar hún var á síðasta ári í lögfræðináminu bauðst henni vinna sem laganemi á lögmannastofunni Rétti og vann hún þar í þrjú ár.

Árið 2013 flutti Hildur til Lundúna með kærasta sínum og syni, vann þar á skrifstofu lögmannsstofunnar Logos og eignaðist fyrstu dóttur sína. Á meðan fjölskyldan bjó í Lundúnum var Hildur viðmælandi Sindra Sindrasonar í þáttunum Á uppleið þar sem hún ræddi um dvölina erlendis. 

„Ef þig langar í eitthvað, farðu bara og náðu í það, sæktu það, gerðu það,“ sagði Hildur meðal annars í þættinum.

5. Sigraðist á eitlakrabbameini

Aðeins sjö dögum eftir að Hildur eignaðist aðra dóttur sína árið 2017 greindist hún með eitlakrabbamein og þurfti að fresta fyrirhuguðu námi sínu við Oxford-háskóla.

„Þegar dóttir mín er nýfædd fer ég að finna fyrir verkjum í kringum brjóstkassann og maður tengir það alltaf bara við meðgönguna,“ sagði Hildur um krabbameinið í samtali við Sindra Sindrason í Íslandi í dag árið 2018.

„Ég fer til heimilislæknis og hann segir bara við mig að ég sé að jafna mig eftir meðgönguna og þetta sé allt eðlilegt. Svo gerist það þegar hún er sjö daga gömul að mamma hringir í mig þegar ég er að ganga niður stiga inn í stofu. Hún spyr mig hvort ég sé úti að hlaupa, því ég er svo svakalega móð. Hún kemur með þá kenningu að ég hlyti að vera með blóðtappa og skipar mér að fara upp á bráðamóttöku,“ sagði Hildur sem hlýddi móður sinni.

Sjá einnig: Endurheimti framtíðina eftir krabbamein og fór í pólitík

„Ég er send í blóðprufur og alls konar próf. Seinna um kvöldið sit ég inni í gluggalausu herbergi og þá kemur inn læknir og segir við mig að ég sé með krabbamein. Það kom síðan síðar í ljós að þetta væri eitlakrabbamein. Fyrsta skipti sem ég fór að gráta eftir þetta var þegar mér var sagt að ég þyrfti að hætta með dóttir mína á brjósti. Það var fyrsta sjokkið.“

Hildur missti hárið vegna krabbameinsmeðferðarinnar, gekk með hárkollu og ákvað strax að nálgast veikindin líkt og verkefni. Hún kláraði lyfjameðferð í byrjun árs 2017 og var rúmu ári síðar komin í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. 

Fimm árum eftir að hún sigraðist á krabbameininu fagnaði Hildur síðan þeim áfanga að útskrifast úr krabbameinseftirliti.

6. Tengist Dr. Football og er gift manninum sem bjargaði KR

Hildur á einn son úr fyrra sambandi með Jóhanni Má Helgasyni, framkvæmdastjóra Wolt á Íslandi, en hann er hvað þekktastur fyrir þáttöku sína í hlaðvarpinu Dr. Football sem Hjörvar Hafliðason stýrir. Jóhann er reglulega viðmælandi í þáttunum og stýrir þeim gjarnan í fjarveru Hjörvars.

Hildur er gift Jóni Skaftasyni, lögfræðingi og athafnamanni, og eiga þau þrjár dætur saman. Hildur og Jón kynntust gegnum sameiginlegan vin, lögmanninn Sigurð Örn Hilmarsson, árið 2012, og giftu sig eftir tíu ára samband árið 2022. 

Jón er bróðir hlaðvarpsstýrunnar Ólafar Skaftadóttur og sonur hjónanna Kristínar Þorsteinsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins, og Skafta Jónssonar, diplómats hjá utanríkisráðuneytinu.

Hildur og Jón taka sjálfu á leið út í Viðey.Vísir/Vilhelm

Jón er með meistaragráðu í lögfræði frá HÍ, starfaði sem viðskiptablaðamaður samhliða laganámi og hefur komið víða við í íslensku atvinnulífi á síðustu árum. Hann var meðal annars framkvæmdastjóri Strengs, forstöðumaður Kaldalóns og stjórnarformaður Sýnar á tímabili.

Hildur og Jón keyptu einbýlishús við Einimel árið 2019 og gerðu það upp með glæsibrag en húsið var til umfjöllunar í sjónvarpsþættinum Heimsókn á Stöð 2 árið 2022. 

Jón er einmitt mikill Vesturbæingur og kom fyrst almennilega fyrir sjónir Vesturbæinga þegar hann kom inn í meistaraflokk KR sumarið 2001 aðeins átján ára gamall. 

Jón skráði sig svo í sögubækur klúbbsins sumarið 2002 þegar hann kom inn á gegn Fylki á 78. mínútu í næstsíðasta leik tímabilsins í Frostaskjólinu. Fylkir leiddi með einu marki gegn engu og hefði sigur appelsínugulra farið langt með að tryggja Árbæingum Íslandsmeistaratitilinn.

Opna úr Morgunblaðinu um örlagaríkt jafntefli KR og Fylkis árið 2002.

En allt kom fyrir ekki því á 84. mínútu (eftir sex mínútur inni á vellinum) jafnaði Jón leikinn með þrumufleyg fyrir utan vítateig sem fór í slánna og inn. Forskot Fylkismanna á toppi deildarinnar hélst því óbreytt og í lokaumferðinni sigldu Vesturbæingar framúr Árbæingum og tóku Íslandsmeistaratitilinn.

„Ég er náttúrlega svellkaldur líka. Það hefur alltaf sýnt sig! Er það ekki það fyrsta sem mönnum dettur í hug þegar þeir fá boltann fyrir utan teiginn að setja hann í samskeytin? Ég gerði það bara,“ sagði nítján ára gamall Jón í viðtali eftir leik.

Knattspyrnuferill Jóns entist þó stutt, hann fór á láni til Víkings sumarið 2003 og gekk síðan til liðs við Eyjamenn vegna lítils spiltíma hjá uppeldisfélaginu. Hann spilaði lítið hjá ÍBV vegna meiðsla, gekk til liðs við nýstofnað 3. deildarlið KV sumarið 2005 og lagði skóna á hilluna fljótlega eftir það. En það hefur greinilega verið heillaskref.

7. Gifti sig í sömu skóm og Carrie Bradshaw

Annað sem kom fram þegar Sindri heimsótti Hildi og Jón á Einimelinn var að uppáhaldsskór Hildar væru bláir Manolo Blahnik-skór. Skórnir eru sambærilegir þeim sem Carrie Bradshaw, aðalpersónan í Beðmálum í borginni, gifti sig í í fyrri kvikmyndinni sem var gerð upp úr þáttunum. 

Skórnir spiluðu stórt hlutverk í þáttunum, myndunum tveimur og framhaldsseríunni And Just Like That... (2021-25). Í fyrri myndinni sem kom út 2008 bað Mr. Big um hönd Carriear með skónum í stað hrings eins og venjan er. 

Hildur var sérstaklega nösk því hún fann notað par af skónum á aðeins brot af því sem þeir kosta venjulega. Hún fetaði síðan í fótspor Carriear og gifti sig í skónum árið 2022.

8. Undarlegt áhugamál

Hildur hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir tvær borgarstjórnarkosningar þannig hún hefur tvisvar tekið Oddvitaáskorun Vísis. Í fyrra skiptið játaði hún nokkuð óvænt.

Sjá einnig: Ekki of gömul fyrir símaöt

Hildur var þar spurð hvert væri hennar uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið og svaraði hún: „Símaöt. Og nei, ég er ekki orðin of gömul í slíkt.“

Fjórum dögum áður en Oddvitaáskorunin birtist það árið hafði Hildur reyndar mætt til útvarpsmannsins Gústa B á FM957 og gerði símahrekk í jafnaðarkonunni Jónínu. Hugsanlega hefur það haft áhrif á svarið.

9. Lét Mörtu Maríu heyra það

Hildur hefur sýnt það á ferli sínum í pólitík að hún er bæði með sterkar skoðanir og með munninn fyrir neðan nefið. Áður en Hildur leyfði pólitískum andstæðingum að finna fyrir því þá lét hún Mörtu Maríu Winkel, ritstjóra Smartlands, eitt sinn heyra það.

Marta María skrifaði pistilinn „Fótósjoppar af sér Instagram-myndir...“ þann 15. október 2014 þar sem hún gagnrýndi 23 ára íslenska stúlku sem hafði lagfært myndir á Instagram með Photoshop til að virka grennri. Marta María nafngreindi hana ekki myndirnar voru þegar komnar í dreifingu og skömmu síðar steig bloggarinn Helga Gabríela Sigurðardóttir fram, viðurkenndi að umræddar myndir væru af henni og að hún hefði lagfært myndirnar. 

Marta var á þessum tíma gagnrýnd töluvert opinberlega fyrir skrif sín en ein þeirra sem gerði það var Hildur Björnsdóttir, þá lögfræðingur hjá Logos, sem skrifaði skoðanagreinina „Af hræsni og mittismálum“ á Vísi 27. október 2014.

„Dag hvern sendir samfélagið konum skilaboð. Skilaboð um hvernig æskilegt er að vera. Hvernig óæskilegt er að vera. Hvernig konur karlmenn kjósa og hvernig hægt er að vera körlum þóknanlegur. Flest segja skilaboðin konum að virði þeirra felist í útliti. Lífshamingjan felist í tölustöfum á baðvog. Bókstöfum á brjóstahöldum. Áferð á húð. Sentimetrum um mitti,“ skrifaði Hildur í pistlinum.

Hildur ávarpaði Mörtu síðan beint í greininni og rifjaði upp pistili Mörtu um stúlkuna tveimur vikum fyrr.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Marta María Winkel kampakátar.Vísir/Vilhelm

„Þar lýstir þú yfir hneykslan þinni á hegðun stúlkunnar og þótti hún afar ósæmileg, ef ekki aumkunarverð. Í gegnum pistilinn skein undran þín á því að stúlkan skyldi sigla undir fölsku flaggi og birta umheiminum ósanna mynd af sjálfri sér. Þú gekkst svo hart fram að umræddri stúlku þótti umfjöllunin meiðandi og særandi,“ skrifaði Hildur.

Hildur sagði að heimurinn væri sýktur þar sem fyrirmyndir kvenna væru glansmyndir sem ættu enga stoð í raunveruleikanum og sjálfstraust kvenna lækkaði við það eitt að fletta tískutímariti. 

„Þar sem undurfögur stúlka, geislandi af heilbrigði, telur sig þurfa með starfænum hætti að breyta útliti sínu áður en henni þykja eigin sjálfsmyndir birtingarhæfar. Í þessu samhengi virðist þér hins vegar yfirsjást hið raunverulega vandamál. Það er ekki stúlkan. Það er samfélagið og menningin. Það eru fjölmiðlar eins og þinn,“ skrifaði Hildur.

„Verandi ritstjóri vefmiðils sem fjallar daglega um agnarsmátt mittismál, útlínur nýbakaðra mæðra, lýtaaðgerðir, megrunarkúra og yngingarmeðferðir – datt þér aldrei í hug að þú bærir einhverja ábyrgð? Að sá fjölmiðill sem þú stýrðir hefði neikvæð áhrif á sjálfsmynd kvenna? Að Smartland sendi konum þau skilaboð að virði þeirra væri mælanlegt með málbandi og baðvog?“

Hildur tók Mörtu engum vettlingatökum.Vísir/Vilhelm

Hildur spurði síðan hvort lyktarskynið brygðist henni þegar hún fyndi þef af hræsni.

„Getur þú staðfest að aldrei hafi birst af þér mynd sem breytt var með hjálp myndvinnsluforrits? Eða er mögulega einhver alþjóðlegur mælikvarði á það hvenær heimilt er að breyta ásýnd sinni á ljósmyndum og hvenær ekki? Er einhver þröskuldur sem rétt er að þekkja? Það væri ágætt að fá þetta á hreint,“ skrifaði Hildur.

Þó vildi Hildur undirstrika að greinin beindist ekki að persónu Mörtu heldur aðeins starfi hennar. 

„Í mínum augum ert þú raunar fórnarlamb þeirrar menguðu menningar sem þú hefur lífsviðurværi þitt af að fjölmiðla. Það er óheppilegt. Eflaust ertu kampakát og stórskemmtileg og gjarnan vildi ég sötra með þér kaffi einn daginn. Setjum það á stefnuskrána,“ skrifaði Hildur og endaði svo á þessum lokaorðum:

„Þegar dóttir mín kemst til vits og ára hefur vonandi eitthvað breyst. Vonandi mun innihaldið trompa umbúðirnar og tíminn hafa læknað þetta samfélagssár. Vonandi verður sjálfsmynd hennar sterk og sjálfsvirðingin mikil. Vonandi munu miðlar eins og þinn ekki brjóta hana niður. Vonandi verða þeir ekki til.“

10. Undarlegur bragðarefur

Hildur fór í viðtal á K100 fyrir borgarstjórnarkosningarnar fyrir fjórum árum, tók þar persónuleikapróf og sagði frá ýmsu, til dæmis stjörnumerki sínu, uppáhalds kvikmyndum og hvað hún fengi sér út í bragðarefinn.

Þar kom fram að Hildur fengi sér einungis bragðaref úr Ísbúð Vesturbæjar og væri sérstaklega í uppáhaldi hjá henni að setja Hockey Pulver-dýfu, Bounty og Þrist í refinn.

„Maðurinn minn myndi örugglega skilja við mig ef hann heyrir þetta. Honum finnst þetta ógeðslegt,“ sagði Hildur í viðtalinu.

#ekki #hlutir #sem #tíu #vissir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889439d/tiu-hlutir-sem-thu-vissir-ekki-um-hildi-bjornsdottur

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 0
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 0
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 0
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 0
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 0
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 2
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólan...
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Su...
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
Rúmenskar F-16 orrustuþotur skutu niður tvo dróna sem flugu yfir Svartahafi innan rúmenskrar landhelgi í gær. Þetta hefur þýski fréttamiðillinn Deutsc...
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
📅 18.10.2026 👁️ 3
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
BBC News hears from users, dealers, prison and recovery workers as the country battles with a deadly new drug epidemic.
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 5
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 5
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 0
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 4
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Several dead or injured in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 2
Several dead or injured in major fire at Canada military base
Officials have not given a cause or death toll, citing the "very active and delicate" situation at Canadian Forces Base Wainwright.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 4
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 4
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
How The Traitors' music plays with your emotions
📅 18.10.2026 👁️ 3
How The Traitors' music plays with your emotions
It's not just treachery and villainy - the soundtrack for Traitors helps set the show's campy tone.
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
📅 18.10.2026 👁️ 2
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndi...
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 4
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 5
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þa...