Tíu erlendum föngum sparkað úr landi

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um fullnustu refsinga sem fela í sér að erlendir fangar sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti fengið reynslulausn þegar einn þriðji refsitímans er liðinn. Að því loknu verður viðkomandi vísað tafarlaust úr landi og sætt endurkomubanni til Íslands og Schengen-svæðisins eftir atvikum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum. Heimildin er tímabundin og gildir til 1. júlí árið 2027.
Samkvæmt lögunum verða þeir sem hafa fengið staðfesta brottvísun ekki lengur gjaldgengir til að afplána refsingu undir rafrænu eftirliti eða á áfangaheimili.
Undirbúningur vegna lagabreytingarinnar hefur staðið yfir hjá Fangelsismálastofnun og heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra undanfarnar vikur. Gert er ráð fyrir að brottvísunarferli um tíu einstaklinga hefjist um leið og lögin taka gildi. Um er að ræða einstaklinga sem allir hlutu dóma fyrir fíkniefnalagabrot og hafa engin tengsl við Ísland.
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að um tuttugu einstaklingar afpláni nú dóma í íslenskum fangelsum þrátt fyrir að fyrir liggi ákvörðun um brottvísun þeirra úr landi.
Erlendum ríkisborgurum í íslenskum fangelsum hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Í dag eru yfir sextíu erlendir ríkisborgarar í afplánun hér á landi.
Stjórnvöld segja að með lagabreytingunni verði dregið úr þrýstingi á fangelsiskerfið, boðunarlistar styttir og nýting fangelsisrýma bætt.
„Það að fremja afbrot hér á landi á að hafa raunverulegar og langvarandi afleiðingar. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir er eðlilegt að brotamanni verði vísað úr landi strax við reynslulausn og sæti endurkomubanni,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.