Að minnsta kosti tíu voru drepnir í loftárás Rússa á flutningaskip í Svartahafi undan ströndu úkraínsku borgarinnar Odesa. Rússar hafa sett aukinn kraft í árásir á flutningaskip síðustu vikur.
Aukinn þungi í árásir á flutningaskip
Flutningaskipið Golden Leo sigldi undir fána Gíneu-Bissaú. Úkraínski flugherinn greindi frá því að rússneskar eldflaugar hefðu hæft skipið í gær. Eldur braust út um borð.
Leitar- og björgunaraðgerðir hófust í gær og stóðu yfir í nótt. Hafnaryfirvöld í Úkraínu sögðu í morgun að níu úr áhöfn skipsins hefðu verið drepnir auk úkraínsks flugmanns.
Stjórnvöld á Indlandi staðfestu síðar að fjórir ríkisborgarar landsins hefðu látist í árásinni.
28 drepnir í Odesa
Árásum á Odesa hefur fjölgað síðustu vikur og samkvæmt Oleh Kiper héraðsstjóra hafa 28 verið drepnir í árásum Rússa á héraðið það sem af er júlí. Rússar hafa einnig sett aukinn kraft í árásir á flutningaskip á Svartahafi.
Sérfræðingar telja að Rússar setji aukinn þunga í árásir á flutningaskip til að fæla erlend fyrirtæki frá að kaupa úkraínskar vörur. Úkraínumenn treysta mikið á útflutning og hann er mikilvæg tekjulind fyrir stjórnvöld.
Tveir þriðju hlutar útflutnings þeirra á landbúnaðarafurðum fer í gegnum Svartahaf – jafnvirði um níu milljarða bandaríkjadala eða yfir 1.100 milljarða íslenskra króna.
Ítrekaðar árásir á báða bóga
Loftárásir Rússa annars staðar í Úkraínu halda einnig áfram. Tveir voru drepnir í loftárásum á borgirnar Pavlograd og Kramatorsk og fjórir í loftárásum á Odesa og Zaporizhzhia, samkvæmt úkraínskum yfirvöldum. Tugir hafa verið drepnir í loftárásum Rússa á Úkraínu í þessum mánuði.
Úkraínumenn hafa einnig sett aukinn kraft í árásir á Rússland. Drónaárás Úkraínuhers á rútu í Belgorod-héraði nærri landamærunum að Úkraínu varð fimm að bana.
Alexander Shuvaev, héraðsstjóri Belgorod, sagði Úkraínumenn viljandi hafa beint árás sinni að rútunni.
„Fimm saklausir almennir borgarar, þar á meðal einn ólögráða einstaklingur, létust í þessari ómannúðlegu og fyrirlitlegu árás. Að auki særðust 23 almennir borgarar, þar á meðal unglingur.“
Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum voru fleiri almennir borgarar drepnir í Úkraínu í júní en í nokkrum mánuði síðan í apríl 2022.