Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í þeirri borg eða landi sem þeir eru staddir hverju sinni. Notendur geta gefið einkunnir og umsagnir og þannig raðast veitingastaðir og staðir upp í röð eftir einkunnunum. Það getur því skipt veitingastaði töluverðu máli að vera ofarlega á listanum og slæmar umsagnir, þó þær séu fáar, geta lækkað einkunnina verulega.
Tíu bestu veitingastaðirnir á Íslandi samkvæmt Tripadvisor