Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins tók við embætti borgarstjóra í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur. Heiða Björg Hilmisdóttir fráfarandi borgarstjóri afhenti Hildi lyklana og svo föðmuðust þær heitt og innilega. Sem er ekkert skrýtið. Þær þekkjast vel og hafa unnið saman í átta ár.
Klæðaburður á þessum tveimur drottningum vakti athygli rannsóknarblaðamanna Smartlands. Ekki má betur sjá en tvo bresk tískuhús hafi hist þarna á þessari innilegu kveðjustund.
Hildur klæddist ljósblárri dragt frá breska tískumerkinu Reiss. Það var stofnað 1971 og hefur síðan þá sérhæft sig í vönduðum fatnaði eins og til dæmis þessari ljósbláu dragt. Reiss hannar og framleiðir góð skrifstofuföt, á karla og konur, en líka partíföt og sumarfrísföt.
Heiða Björg var í kjól frá ba&sh sem er franskt tískumerki. Það var stofnað í París af vinkonunum Barböru Boccara og Sharon Krief. Nafið á fatamerkinu er samansafn af fyrstu stöfunum í nöfnum þeirra beggja.
Merkið er orðið vinsælt um allan heim. Sem er ekkert skrýtið því sniðin eru klæðileg og stíllinn bæði smart og afslappaður. Útsaumurinn í kjólnum gerir kjól Heiðu Bjargar ennþá flottari.
Hérlendis fæst það í Mathildu í Kringlu og Smáralind.





