Tilraun Rússa til drónaárása í Þýskalandi í síðasta mánuði eru hryðjuverk, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Hún sat fund utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja á Írlandi í dag.
„Það var nefnt á fundinum að það á bara að kalla þessar ógnir því sem þær heita, sem er bara hryðjuverk. Það er horft á það þannig í Evrópu. Samstaða Evrópuríkjanna allra, líka þeirra sem eru utan Evrópusambandsins, sem og Kanada var eindregin, bæði með Þjóðverjum og Úkraínu.“
Þetta er óformlegur fundur sem er haldinn tvisvar á ári. Auk utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja sækja fundinn utanríkisráðherrar Kanada, Bretlands og EFTA-ríkjanna, Sviss, Noregs og Íslands. Þar var einnig Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu.
Þorgerður segir málefni Úkraínu og samstöðu Evrópuríkja með Úkraínu hafa verið efst á blaði á fundinum. Tilraun Rússa til drónaárásar í Leipzig hafi sömuleiðis verið ofarlega á baugi. Í gærkvöld sakaði Vladimír Pútín Rússlandsforseti þýsk stjórnvöld um að koma sönnunargögnum fyrir á vettvangi til að koma sökinni á Rússa.
„Það er bara ekkert hæft í því. Það er búið að fara vel yfir þessar ásakanir Rússa. Það er allt sem undirstrikar það að þetta eru þessar fjölþáttaógnir sem koma frá þeim. Þeir eru fremstir í flokki í að beita þeim í dag.“
Þorgerður segir ógnir við alþjóðaöryggi leynast víða.
„Ég held að það þýði ekki að sýna neina einfeldni í þessu. Þessi fundur í dag undirstrikar það í rauninni hvað vestræn lýðræðisríki mega búa sig undir á næstu misserum. Þá skiptir samstaða þessara ríkja sem mættu á fundinn í dag miklu máli og er mjög dýrmætt að geta verið í þeim tengslum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.