Frá málinu er greint í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag og þar segir að konan hafi verið handtekin og vistuð í fangaklefa en látin laus að skýrslutöku lokinni.
Málinu er ekki lýst frekar í dagbók lögreglu en það er bókfært hjá lögreglustöð 4 sem sinnir verkefnum austan Elliðaáa.