Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, lenti rúta á ferð um Landmannaleið í holu og er einn farþeganna slasaður.
Þyrlan sé nýkomin á svæðið og gert sé ráð fyrir því að farþeginn verði fluttur til aðhlynningar. Ekki liggi fyrir hvert maðurinn verði fluttur.