Þung­lyndi, kvíði og ást­sýki þrítugsaldursins - Vísir

Þung­lyndi, kvíði og ást­sýki þrítugsaldursins - Vísir

Þung­lyndi, kvíði og ást­sýki þrítugsaldursins - Vísir

Leikstjóri 20 og eitthvað er Kristófer Dignus, sem hefur áður leikstýrt Fólkinu í blokkinni (2013), Jarðarförinni minni (2020), Kennarastofunni (2023) og fjölmörgum öðrum þáttaröðum. Þættirnir eru framleiddir af Guðnýju Guðjónsdóttur og Söru Djeddou Baldursdóttur gegnum framleiðslufyrirtækið Kontent.

Handrit þáttanna er skrifað af Arnóri Björnssyni, Óla Gunnari Gunnarssyni og Vigdísi Hafliðadóttur en þau þrjú fara jafnframt með aðalhlutverkin í þáttunum.

Leikhópurinn er þó fjölmennur, má þar nefna Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, Björgvin Franz Gíslason, Vilhjálm B. Bragason vandræðaskáld, Maríu Hebu Þorkelsdóttur og fjölda upprennandi leikara á borð við Birtu Sólveigu Söring, Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, Vilberg Andra Pálsson, Kolbrúnu Maríu Másdóttur, Selmu Rán Lima, Nikulás Hansen Daðason og ýmsa aðra.

Þáttaröðin 20 og eitthvað var frumsýnd á Rúv 17. apríl en sjötti og síðasti þáttur hennar sýndur fyrir viku síðan, 29. maí.

Frumlegt form með reglulegu uppbroti 

Þættirnir 20 og eitthvað fylgja eftir þremur aðalpersónum sem þurfa að takast á við ólíkar áskoranir þrítugsaldursins. Sögum persónanna er fléttað saman og fylgja áhorfendur þeim eftir í grátbroslegum og stundum sprenghlægilegum aðstæðum.

Diljá (Vigdís) er nýbyrjuð í leikaranámi en glímir við gríðarlega loddaralíðan, Teitur (Arnór) lendir í ástarsorg og tilvistarkrísu eftir sambandsslit og Janus (Óli Gunnar) veit ekki hvað hann á að gera við líf sitt eftir að hafa hætt í eftirsóttu arkitektúrnámi erlendis.

Aðalpersónurnar þrjár hittast nær aldrei í þáttunum þó þau deili ýmsum sameiginlegum snertiflötum.

Frásagnarform þáttanna er frumlegt að því leyti að þó þeir fylgi ákveðinni sögu þá er framvindan reglulega brotin upp með atriðum sem minna meira á sketsa en hefðbundnar senur. Reglulega dúkka upp söngatriði, senur þar sem lögmál heimsins eru ýkt og svo brjóta persónurnar reglulega fjórða vegginn með því að ávarpa áhorfendur.

Þetta form gerir að verkum að fléttan er ekki í eins miklu aðalhlutverki, stök atriði geta jafnvel staðið sjálfstæð og þættirnir fanga betur heildarstemmingu tíðarandans hjá fólki á þrítugsaldri frekar en að vera karakterstúdía.

Hugmyndin að þáttunum kemur upphaflega frá Arnóri og Óla Gunnari, frændum úr Hafnarfirði sem hafa unnið saman á sviði og í sjónvarpi síðan þeir voru unglingar. Þeir fengu Vigdísi Hafliðadóttur til liðs við sig eftir að hafa heillast af uppistandi hennar og söng í hljómsveitinni Flott. Þremenningarnir skrifuðu þættina saman og á tímunum sem leið milli þess að tökur þáttanna kláruðust og þeir voru frumsýndir, skrifuðu þau og sýndu sketsaleikritið Ekki hugmynd.

Vigdís tók að sér enn annað hlutverk en hljómsveitin hennar, Flott, samdi sjö lög fyrir seríuna: upphafsstef þáttanna, „Tuttugu og eitthvað“ og sex önnur lög sem koma fyrir. Líkt og þættirnir fjalla lögin um sameiginleg vandamál fólks á þrítugsaldri, spurningaflóð ættingja um hvað maður sé að gera, rándýr matarinnnkaup og eftirsjá yfir því að hafa farið á djammið.

Misskemmtilegar persónur 

Þræðir persónanna þriggja eru hins vegar missterkir og misfyndnir. Saga Janusar er einna dramatískust meðan þræðir hinna tveggja eru ívið léttari - þó allir þrír þræðirnir flakki reglulega milli gríns og alvöru.

Óli Gunnar leikur Janus í þáttunum.

Janus er í byrjun seríunnar nýhættur í arkitektúrnámi í MIT og fluttur inn til vina sinna, parsins Brynjars (Nikulás Hansen) og Guðrúnar (Birta Sólveig). Hann upplifir sig mislukkaðan og er óviss um framtíð sína, veit ekki hvort hann eigi að skrá sig í nám eða sækja um vinnu. 

Gegnum seríuna glímir Janus við þessar spurningar og ræðir reglulega við tólf ára útgáfuna af sjálfum sér. Óli Gunnar er sannfærandi sem hinn brjóstumkennanlegi Janus. Á köflum fannst mér karakterinn hins vegar vera aðeins of leiðinlegur og vansæll. 

Vandræði Teits eru annars eðlis, hann er í vinnu, á gott samband við fjölskyldu sína og er í sambandi með æskuástinni Möggu (Berglind Alda). Sambandið stendur þó höllum fæti og samskiptin einkennast af afbrýðisemi og vantrausti. Sambandsdraugurinn (Villi vandræðaskáld) bankar upp á og þau standa í löngum samningaviðræðum um hegðun á samfélagsmiðlum. 

Teitur með sýndarveruleikagleraugun.

Sambandið splundrast svo þegar Berglind kemur að Teiti í sérstaklega vandræðalegum aðstæðum sem er best að spilla ekki. Eftir það sekkur Teitur ofan í þunglyndi einhleypa mannsins, hitar sér frosnar pizzur, liggur í sófanum og glápir á sjónvarpið. Arnór er fantagóður grínleikari og sýnir það hér.

Einn besti hluti seríunnar er fjölskylda Teits sem samanstendur af íhaldssömum foreldrum (Björgvin Franz og María Heba), yngri bróður sem er illa leikinn af enskum áhrifum og karlahveli samfélagsmiðla og yngri systur sem þjáist af því sem mætti kalla vók-viðkvæmni. Senurnar kjarna íslenskt fjölskyldulíf og dýnamík fjölskyldunnar er algjör snilld.

María Heba er góð sem málfarslöggumóðir, Björgvin Franz sýnir á sér nýja íhaldssama hlið, María Pála Marcello er góð sem viðkvæma systirin og stjarna þáttanna er örverpið Kolbeinn sem er leikinn af Högna Dignus Maríusyni en hann hefur masterað ensk-íslenskan talsmáta krakka sem alast upp á samfélagsmiðlum.

Fjölskylda Teits er feiknarvel leikin og senurnar með henni stórskemmtilegar.

Loks er það Diljá sem glímir við fullkomnunaráráttu á háu stigi, miklar allt fyrir sér, reynir endalaust að þóknast öðrum, bæði samfélagsmiðlasjúkum vinkonum sínum og sjálfumglöðum samnemendum á leikarabrautinni.

Senurnar úr skólanum eru góðar og tækla skemmtilega leikarakrakkana sem eru uppteknir af því að sviðsetja eigin tráma eða bera sig á sviði. Einn af hápunktum seríunnar er þegar Diljá á að flytja einstaklingsverkefni sitt í skólanum og allt fer úrskeiðis. Erfiðara er að kaupa atriðin með vinkonunum þar sem er deilt á ýkta samfélagsmiðlahegðun og fyrir vikið missa þær dálítið marks.

Vigdís Hafliða er grínisti, söngkona og leikkona.

Hvenær á að stoppa brandara

Heildarútlit þáttanna er þrælgott og þeir fagmannlega unnir hvert sem er litið. Þar má nefna leikstjórn Kristófers, kvikmyndatöku Víðis Sigurðssonar, klippingu Stefaníu Thors og Óla Gunnars og búningahönnun Arndísar Eyjar. 

Titlar seríunnar eru hannaðir af Briek Dockers í skemmtilega litríkum retro-stíl og hreyfihönnun titilraðarinnar (e. title card sequence) af Jo van Hove með skuggamyndum sem minna dálítið á titilsenur Stelpnanna (2005-14). Saman gefur þetta seríunni skýrt heildrænt útlit.

Teitur heldur með Liverpool og er hálfgerður aumingi.

Sterkasti hluti 20 og eitthvað er hvað þeir fanga vel tíðaranda þessarar kynslóðar sem er til umfjöllunar hvort sem það er vók-viðkvæmni yngri systur Teits og íhaldssemi foreldra hans, vesenið sem fylgir því að fara niður í bæ að djamma eða erfiðleikarnir á stefnumótamiðlum nútímans.

Þá er gaman að sjá hvað aðstandendur þáttanna eru óhræddir við að taka sénsa, fjórði þátturinn gerist til að mynda allur á djamminu þar sem víma karakteranna fær þá til að tala í bundnu máli. Rímið tekur vissulega of mikið pláss og gengur aðeins of langt en sviðsetning djammsins er vel lukkuð.

Þættirnir eru eftir allt saman grínþættir og velta á ágæti þess. Heilt yfir er grínið í þáttunum mjög misfyndið, eins og gengur og gerist, enda getur ekki allt verið fyndið. Sumt fannst mér ekkert fyndið, annað bara skondið og svo hló maður oft rækilega. Helsti löstur seríunnar er að sumir sketsar og brandarar eiga það til að verða of langir. Oft upplifði ég að höfundarnir væru of ánægðir með eigin grín til að skera það niður meðan þeir hefðu einmitt þurft að vera miskunnarlausir.

Diljá ávarpar áhorfendur reglulega.

Gott er að kynna inn ákveðið grín og klifa svo á því gegnum seríuna, bæði gefur það ákveðinn heildarbrag og svo getur grínið orðið fyndnara eftir því sem það er rifjað upp oftar. Þetta er þó vandmeðfarið og ofnotkun getur orðið til þess að áhrifin verka öfugt. Gott dæmi er að Diljá brýtur reglulega fjórða vegginn og syngur vandræðalegar hugsanir sínar fyrir áhorfendur. Söngur innri raddarinnar verður hins vegar að ákveðinni hækju og er endurnýttur svo oft að maður fær leið á því eftir bara tvo þætti.

Annar ofnotaður karakter er sambandsdraugurinn sem er skemmtileg pæling um mann sem ásækir léleg sambönd. Það er þó ekki nóg að láta hann dúkka upp kollinum aftur og aftur, maður finnur ekki fyrir neinni stigmögnun þannig að efnið verður dálítið endurtekið.

En þrátt fyrir að brandararnir dragist stundum á langinn þá eru 20 og eitthvað vel lukkaðir þættir. Gaman er að sjá íslenska þætti þar sem leikgleði ræður för og fólk er óhrætt við að hugsa út fyrir kassann, prófa sig áfram og þenja formið. Eftir að hafa farið með Janusi, Teiti og Diljá gegnum sex þætti gæti ég vel hugsað mér að fylgjast með frekari ævintýrum þeirra.

Niðurstaða

20 og eitthvað eru vel lukkaðir gamanþættir sem fanga tíðaranda síðustu ár með því að taka fyrir vandræði þriggja karaktera á þrítugsaldri. Form þáttanna er óhefðbundið og þar blandast saman bein framvinda, sketsar og tónlistaratriði.

Handritsteymið þreytir hér frumraun sína saman og tekst vel til. Gaman er að sjá óhrædda höfunda leyfa leikgleðinni að ráða för frekar en að halda sig við eitthvað einfaldara. Helst má gagnrýna þau fyrir skort á miskunnarleysi því ýmsir brandarar seríunnar eiga það til að dragast á langinn.

Leikhópurinn í seríunni er virkilega sterkur, bæði er þar að finna þrautreynda gamanleikara sem kunna sitt fag og yngra fólk sem er á uppleið. Einna bestir fannst mér Björgvin Franz í hlutverki íhaldssams föður og og Högni Dignus sem ómálga unglingur.

#kvíði #vísir #ástsýki #þrítugsaldursins #þunglyndi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892544d/thung-lyndi-kvidi-og-ast-syki-thritugsaldursins

📰 Aðrar fréttir

Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Hlíðarfjalls. Þar segir að til að byrja með verði snjór framleiddur á neðra svæðinu en þar eru til dæmi...
Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum - Vísir
Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar unnið Crossfit-heimsleikana tvisvar og eiga sömuleiðis báðar börn, þannig að þær þekkja vel hvernig það er að æf...
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stefán Pálsson, borgarfulltrúar Vinstrisins, gagnrýna breytingar sem á að gera í framsetningu leikskólagjalda fyrir for...
Russia ready to resume talks with Ukraine and US to end war
📅 21.10.2026 👁️ 1
Russia ready to resume talks with Ukraine and US to end war
The announcement came after Russian President Vladimir Putin met US President Donald Trump's special envoy Steve Witkoff in St Petersburg.
Glee snýr aftur - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Glee snýr aftur - Vísir
Streymisveiturnar Disney+ og Hulu greina frá endurræsingunni (e. reboot) í tilkynningu. Tónlistardramaþættirnir Glee eru hugarsmíði hins afkastamikla ...
Með kannabis, ketamín, LSD, hníf og riffilskot í bílnum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Með kannabis, ketamín, LSD, hníf og riffilskot í bílnum
Lögreglan á Norðurlandi vestra lagði hald á tæp 30 grömm af kannabis, 140 grömm af ketamíni, 36 MDMA töflur, MDMA kristalla og 84 pappastykki er innih...
Sakar Mosfellsbæ um áhugaleysi, hroka og fálæti í málefnum ræstingarfólks
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sakar Mosfellsbæ um áhugaleysi, hroka og fálæti í málefnum ræstingarfólks
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ástæðu fyrir útsvarsgreiðendur og þjónustuþega Mosfellsbæjar að hafa áhyggjur af meðferð bæjarins á ...
Loka vef­síðum tíma­bundið í var­úðar­skyni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Loka vef­síðum tíma­bundið í var­úðar­skyni - Vísir
Öryggisgallinn er í forritunarmálinu PHP sem umtalsverður hluti vefsíðna í heiminum reiðir sig á. Tvær neyðaruppfærslur voru gefnar út vegna gallans s...
Google experiences resignation backlash over AI military contracts
📅 21.10.2026 👁️ 1
Google experiences resignation backlash over AI military contracts
The BBC speaks to several current and former Google DeepMind employees about their concerns with AI use on the battlefield.
Margar íslenskar vefsíður sem nota PHP útsettar fyrir veikleikum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Margar íslenskar vefsíður sem nota PHP útsettar fyrir veikleikum
Talsverður fjöldi íslenskra vefsíðna notast við PHP-forritunarmálið.„Svo það er ekkert óeðlilegt að vefsíður detti núna niður í ákveðinn tíma meðan þa...
Passenger arrested after drugs found in luggage at Gran Canaria Airport
📅 21.10.2026 👁️ 1
Passenger arrested after drugs found in luggage at Gran Canaria Airport
A passenger arriving at Gran Canaria Airport from mainland Spain has been remanded in custody after Guardia Civil officers found 460 grams of the synt...
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár
📅 21.10.2026 👁️ 1
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár
Kaffistofa Samhjálpar hefur verið mjög til umfjöllunar síðastliðið ár. Flytja þurfti hana úr Borgartúni í október fyrir ári og húsnæði hafði fundist v...
Aberfan disaster: Royal Family pay respects to 'most tragic of days imaginable'
📅 21.10.2026 👁️ 1
Aberfan disaster: Royal Family pay respects to 'most tragic of days imaginable'
In total 116 children and 28 adults were killed when a colliery spoil tip collapsed on 21 October 1966.
Bára beauty greinir frá kyni tvíburanna
📅 21.10.2026 👁️ 1
Bára beauty greinir frá kyni tvíburanna
Bára Jónsdóttir, fasteignasali, förðunarfræðingur og fitness-ræktarkona, þekkt sem Bára Beauty, á von á tvíburum með kærasta sínum, Tryggva Jarli Svei...
Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr - Vísir
Rokkhljómsveitin Spacestation hefur verið starfandi síðan 2023, gáfu út fyrstu plötu sína í fyrra og fylgdu henni eftir með Who Killed Spacestation? s...
Fá mál á þingi: Vel­gengni eða innanflokksátök? - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fá mál á þingi: Vel­gengni eða innanflokksátök? - Vísir
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá má...
Fá mál á þingi: „Fórnar­lömb vel­gengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fá mál á þingi: „Fórnar­lömb vel­gengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá - Vísir
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá má...
Veitingamaður kannast ekki við þá mynd sem var dregin upp í Kveik - „Metnaður sölumanna er ekki glæpur“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Veitingamaður kannast ekki við þá mynd sem var dregin upp í Kveik - „Metnaður sölumanna er ekki glæpur“
Umfjöllun Kveiks um viðskiptahætti Ölgerðarinnar vakti mikla athygli í síðustu viku, en þar var þeirri spurningu varpað fram hvort Ölgerðin væri að ha...
Svæsin magapest dreifði sér hratt í flugvél – Þrír enduðu á sjúkrahúsi
📅 21.10.2026 👁️ 1
Svæsin magapest dreifði sér hratt í flugvél – Þrír enduðu á sjúkrahúsi
Kalla þurfti til heilbrigðisstarfsfólk í hlífðarfatnaði til þess að sinna farþegum um borð í flugvél þar sem skæð nóróveira braust út. Flytja þurfti þ...
Öryggisgalli ógnar vefsíðum um heim allan
📅 21.10.2026 👁️ 1
Öryggisgalli ógnar vefsíðum um heim allan
Loka þurfti vef Reykjavíkurborgar tímabundið á meðan unnið var að uppfærslum í tengslum við öryggisgallann. Þetta staðfestir Hulda Gunnarsdóttir, verk...
Femíníska tímaritið Emma færist alfarið á netið
📅 21.10.2026 👁️ 1
Femíníska tímaritið Emma færist alfarið á netið
Síðasta tölublað þýska femíníska tímaritsins Emma verður gefið út í desember. Tímaritið, sem hóf göngu sína árið 1977, var áhrifaríkt og mótaði femíní...
„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“ - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“ - Vísir
Júrí Úsjakóv sagði við blaðamenn í dag að Pútín hefði tilkynnt Steve Witkoff, sérstökum erindreka Donalds Trump, á fundi þeirra í Pétursborg í dag að ...
Rannsókn lokið í máli manns sem grunaður er um að bana föður sínum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Rannsókn lokið í máli manns sem grunaður er um að bana föður sínum
Rannsókn er lokið í máli manns á fimmtugsaldri sem situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát föður síns. Maðurinn lést í heimahúsi í Kópavogi í júl...
Holocaust school lessons to be improved after 'shocking' antisemitism review
📅 21.10.2026 👁️ 1
Holocaust school lessons to be improved after 'shocking' antisemitism review
Education Secretary Lucy Powell has stressed the importance of reminding new generations of the horrors of the Holocaust.
Glee reboot: The US high school musical comedy-drama is to return on Hulu and Disney+
📅 21.10.2026 👁️ 1
Glee reboot: The US high school musical comedy-drama is to return on Hulu and Disney+
Ryan Murphy's popular musical comedy-drama is set to return after more than a decade.
Skorar á land­lækni að leið­rétta rang­færslur - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skorar á land­lækni að leið­rétta rang­færslur - Vísir
Bjarni ritar grein sem hann birtir á Vísi um þetta efni. Hann viðurkennir fúslega, í samtali við Vísi, að hann sé ekki hlutlaus, hann er framkvæmdastj...
Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum
Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausam...
Al­var­legur veik­leiki hjá fjölda vef­síðna - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Al­var­legur veik­leiki hjá fjölda vef­síðna - Vísir
„Það fundust tveir mjög alvarlegir veikveillar í PHP-forritunarmálinu,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, í samtali við fréttastofu. „...
Burnham defends Jackdaw decision as Badenoch urges PM to overturn ban on new oil and gas licences
📅 21.10.2026 👁️ 1
Burnham defends Jackdaw decision as Badenoch urges PM to overturn ban on new oil and gas licences
The UK government says the field, which is opposed by environmental campaigners, could be producing gas by the end of this month.
Jeffrey Donaldson to be interviewed over alleged rape inside Houses of Parliament
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson to be interviewed over alleged rape inside Houses of Parliament
While not naming the disgraced former MP, the Metropolitan Police has issued a statement confirming a 63-year-old man is being investigated.
Eiríkur Björn tekur við varaformennsku af Jóni Gnarr
📅 21.10.2026 👁️ 1
Eiríkur Björn tekur við varaformennsku af Jóni Gnarr
Hrókeringar í nefndastörfum á vegum Viðreisnar héldu áfram í morgun þegar skipt var um fyrsta varaformann í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis...
Vilja fá umdeilda kvikmynd til Íslands – „Hvers vegna fáum við ekki að sjá hana?“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Vilja fá umdeilda kvikmynd til Íslands – „Hvers vegna fáum við ekki að sjá hana?“
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Ólöf Grétarsdóttir eru mæður og sérfræðingar á sviði stafrænnar velferðar. Þær vilja sjá kvikmyndina The Social R...
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni
Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir átti erfiðan morgun í byrjun vikunnar. Hún sagði frá því í myndbandi á TikTok.„Ég átti...
Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi - Vísir
Þúsundir krefjast þess að óháð útekt verði gerð á meðferð kynferðisofbeldismála eftir umdeildan dóm Landsréttar þar sem karlmaður var sýknaður af nauð...
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga
Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra um að greiðslur fyrirtækis til eiganda þess skuli færðar honum til tekna en ekki skilgreinast ...
Nýtt félag ætlar að hasla sér völl á íslenskum flugfraktmarkaði
📅 21.10.2026 👁️ 1
Nýtt félag ætlar að hasla sér völl á íslenskum flugfraktmarkaði
TVG-Zimsen, dótturfélag Eimskips, og alþjóðlega fyrirtækið Kales Group hafa stofnað nýtt félag, Kales Iceland, sem mun starfa á íslenskum flugfraktmar...
Björguðu særðum her­manni með dróna - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Björguðu særðum her­manni með dróna - Vísir
Þetta ku vera í fyrsta sinn sem þetta er gert en áður hafa Úkraínumenn notað fjarstýrða róbóta til að flytja særða menn. Það þótti hins vegar ekki hæg...
Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum - Vísir
Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í dag að Eiríkur Björn hefði verið kosinn á fundi nefndarinnar í morgun. Breytingin kemur í kjölfar ú...
„Stjórnmál samtímans ganga mikið út á að ná frásögninni“
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Stjórnmál samtímans ganga mikið út á að ná frásögninni“
Frönsk stjórnvöld reyna að kenna vinstri flokkum um hatrömm mótmæli í landinu upp á síðkastið, segir Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og sérfræðing...
Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk - Vísir
Búið er að flytja fyrsta og stærsta hlutann upp í Þórsmörk en um er að ræða heljarinnar verk. Stærsti hlutinn er um 22 tonn að þyngd en ekki var hægt ...
Varað við alvarlegum veikleikum í fjölda vefsíðna
📅 21.10.2026 👁️ 1
Varað við alvarlegum veikleikum í fjölda vefsíðna
Netöryggissveitin CERT-IS varar við því að tveir mjög alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á vi...
Er George Soros á bakvið fjölda samtaka sem koma að óeirðunum?
📅 21.10.2026 👁️ 1
Er George Soros á bakvið fjölda samtaka sem koma að óeirðunum?
Milljarðamæringurinn George Soros hefur veitt fjárhagslegan stuðning til samtaka sem hafa hvatt til mótmæla í Frakklandi, stutt kröfur nemenda eða gag...
Klæmdist ó­vart við fjór­tán ára og var sýknaður - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Klæmdist ó­vart við fjór­tán ára og var sýknaður - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. október og birtur í dag. Í dóminum segir að ekki hafi verið ágreiningur um að maður...
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss Fréttin21. október 2026Innlent, Stjórnmál, TrúmálL...
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
Sjónvarpsstjarnan Kelly Osbourne greinir frá því að hún sé búin að þyngjast um tæp 14 kíló og henni líði betur, en margir hafa haft miklar áhyggjur af...
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
Hulunni var svipt af leyndarmáli Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, í morgun. Bætti hún um betur og afhjúpaði sönnu söguna þar að baki.
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Diop. Á Instagram lýsir Guðrún sér sem ferðasjúkri tó...
Tólf barna móðir selur sveitadraum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Ragnars Ibrahimasonar Diop. Á Instagram lýsir Guðrún ...
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af sta...
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
📅 21.10.2026 👁️ 1
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
Landsréttur hefur birt gæsluvarðhaldsúrskurði tveggja sakborninga í Straumsvíkurmálinu svokallaða, en í sumar var 106 kílóum af kókaíni smyglað til la...