Þrastarfugl sem komið hafði sér fyrir hjá Alþingishúsinu í Reykjavík er nú horfinn úr hreiðri sínu ásamt eggjum sínum fjórum. Einn köttur liggur undir grun.
Frá þessu greinir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook.
„Það hryggir mig meira en væri eðlilegt að þurfa að tilkynna að þrastarfuglinn sem hefur legið á eggjum sínum hjá Alþingishúsinu er horfinn úr hreiðri sínu ásamt eggjunum fjórum,“ skrifar Hildur.
„Svarti kötturinn sem heldur til í Alþingisgarðinum liggur sterklega undir grun um þennan glæp.“