Er þetta meðal þess sem greint er frá í yfirliti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um verkefni dagsins. Alls séu fjórir vistaðir í fangageymslu.
Auk þess barst lögreglu tilkynning um innbrot í fyrirtæki í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar hafi rúða verið brotin og sjóðsvél stolið. Málinu er ekki lýst frekar en nokkuð hefur verið fjallað um innbrotahrinu í mið- og vesturbæ Reykjavíkur undanfarið. Vísir sagði meðal annars frá því í síðustu viku að frá mánaðamótum hafa meira en sextíu innbrot verið tilkynnt miðsvæðis í Reykjavík.
Lögregla hafði einnig afskipti af manni sem var með ónæði í verslunarkjarna og hafði meðal annars hent til ruslatunnum á svæðinu. Rætt hafi verið við manninn sem hafi í kjölfarið lofað „að stilla skap sitt og vera til friðs.“ Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar þrjú sem sinnir útköllum í Breiðholti og Kópavogi.
Þá barst lögreglu tilkynning um minniháttar líkamsárás en málið hafi verið afgreitt samkvæmt venju.