Þrír voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á Donetsk-hérað sem hernumið er af Rússum og nefnt Alþýðulýðveldið Donetsk.
Leiðtoginn Denis Pushilin, Rússi sem ráðið hefur þar ríkjum síðan 2018, tilkynnti þetta í færslu á samskiptamiðlinum Telegram og sagði minnst fimm til viðbótar hafa særst, einn mjög alvarlega.
Úkraínskum drónum hefur einnig verið beint að orkuinnviðum í rússneska héraðinu Volgogrod. Íbúðahús skemmdist en engin tíðindi hafa borist af manntjóni. Tveir særðust lítillega þegar dróni skall á íbúðahúsi í rúmensku hafnarborginni Galati í nótt. Borgin er nærri landamærunum að Úkraínu. Þarlend útvarpsstöð greindi frá atvikinu.