Hinn 13 ára Aleksandr Plushenko, skautahlaupsdrengur frá Rússlandi, hefur skipt um ríkisfang og gerst ríkisborgari Aserbaísjan.
Hann mun því keppa fyrir Aserbaísjan í framtíðinni í staðinn fyrir Rússland.
Drengurinn ungi er stjarna í Rússlandi og er með yfir milljón fylgjendur á Instagram og er ákvörðunin áfall fyrir rússneskar íþróttir.
„Ég er alls ekki sáttur. Sem ráðherra get ég ekki sætt mig við þetta,“ sagði Mikhail Degtyarev, íþróttamálaráðherra Rússlands, samkvæmt Expressen í Svíþjóð.
Degtyarev gaf það út í febrúar síðastliðnum að rússneskt íþróttafólk sem keppir fyrir aðra þjóð yrði rekið úr landi og meinað að koma aftur til Rússlands.