Handknattleiksþjálfarinn og íþróttafræðingurinn Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur og gestakennari við námsbraut í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands (HÍ).
Þórir er fæddur á Selfossi en hefur búið og starfað sem handknattleiksþjálfari í Noregi síðastliðin 40 ár og m.a. náð einstæðum árangri á heimsvísu með kvennalandslið Noregs í handknattleik. Hann stýrði liðinu á 20 stórmótum, bæði Evrópu- og heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum, og náði lið hans í 17 verðlaun á árunum 2009 til 2024, þar af tíu gullverðlaun, að því er segir í tilkynningu frá HÍ.
Heldur opna fyrirlestra
Þórir lauk meistaragráðu í íþróttafræði frá Íþróttaháskólanum í Ósló en námið mótaði faglega nálgun hans í þjálfun afreksíþrótta.
„Nú fá íþróttafræðinemar Háskóla Íslands að njóta þekkingar hans og reynslu en Þórir mun koma að kennslu bæði í grunn- og framhaldsnámi í íþrótta- og heilsufræði HÍ.
Auk þess mun hann halda opna fyrirlestra fyrir þjálfara og annað áhugafólk um afreksþjálfun í íþróttum á vegum rannsóknarstofu í íþrótta- og heilsufræði við HÍ,“ segir enn fremur í tilkynningunni.