Þetta kemur fram í fundargerð hreppsnefndar sem BB greinir frá og sömuleiðis að starfshlutfall hennar verði einungis sextíu prósent. Um sextíu manns búa í Árneshreppi.
Fyrir starfið fær Þorgerður rúmar 650 þúsund krónur í laun. Í fundargerðinni segir að laun fyrir störf við stjórnsýslu hreppsins hækki töluvert við ákvörðunina en telur meirihluti nefndarinnar að það sé nauðsynleg leiðrétting.
Þorgerður var ein af fimm sem hlutu kjör sem sveitarstjórnarfulltrúi í kosningunum í vor. Til stóð að sameina Árneshrepp og Kaldrananeshrepp en ógilti innviðaráðuneytið ógilti íbúakosningar vegna ágalla.