Þorgerður sér sigur í lengri hengingaról

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Loftslagsskattur Evrópusambandsins miðast við aðstæður á meginlandi Evrópu. Verði skatturinn óbreyttur innleiddur hér á landi má bóka gjaldþrot Icelandair eftir fáein misseri. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra kallar það bæði stórsigur og sérlausn að skatturinn skellur ekki á Íslandi af fullum þunga.
Í reynd fékk Ísland þriggja ára frestun á fullri innleiðingu loftslagsskatts ESB. Hengingarólin var framlengd til ársins 2030. Það er hvorki sigur né sérlausn.
Loftslagsskattar ESB eru sniðnir að meginlandsríkjunum sem ráða ferðinni í sambandinu. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair bendir á að fyrirtækið hafi ,,fjárfest fyrir 100 milljarða í sparneytnustu farþegaþotum sem um getur en á sama tíma greiði félagið hærri umhverfisskatta en samkeppnisaðilarnir sem margir hverjir mengi mun meira.“
Þorgerður Katrín tók sér vikufrí í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðslu í þágu Viðreisnar, sem fer fram í lok ágúst. Ráðgjafar Þorgerðar Katrínar ráðlögðu pásu á orðaflauminn eftir að utanríkisráðherra missti sig í tveim viðtölum 10. júlí. Í viðtali á Vísi og í öðru samtali á RÚV sagði Þorgerður Katrín að Ísland væri stórveldi. Ráðgjafar ráðherra töldu ákveðna hættu á að næst myndi utanríkisráðherra bjóða Evrópusambandinu aukaaðild að lýðveldinu Íslandi. Ráðgjafarnir mæltu eindregið með málhvíld í nokkra daga.
Í heila viku þagði Þorgerður Katrín, lét fjölmiðla ekki ná í sig. Í gær gat hún ekki á sér setið og sendi út fréttatilkynningu um að loftslagssnara ESB um háls íslensks millilandaflugs verði ekki hert fyrr en eftir þrjú ár. Stórsigur, sagði utanríkisráðherra, að bætti við að frestunin sýndi velvild og umhyggju Evrópusambandsins fyrir Íslandi.
Á einni viku breyttist Ísland úr stórveldi í hjálendu sem þakkar fyrir að fá að skrimta í þrjú ár enn. Utanríkisráðherra segir eitt í dag og annað á morgun. Vanstillt málæði Þorgerðar Katrínar er orðið að diplómatísku hneyksli.
Utanríkisráðherra ætti að taka sér Kristrúnu forsætisráðherra til fyrirmyndar og þegja í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst.