Þorgerður og Viðreisn afneita ESB

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þjóðaratkvæðið á höfuðdaginn var ekki um aðild Íslands að Evrópusambandinu heldur vexti og krónuna, segir forystupar Viðreisnar, Þorgerður Katrín og Daði Már, í fjölpósti til flokksmanna.
Ha?
Þjóðin stóð í þeirri meiningu að kosningin á laugardag snerist um ESB-umsókn, samanber spurninguna á kjörseðlinum. „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“. Nei, segja formaður og varaformaður Viðreisnar.
Evrópusambandsaðild var aldrei markmið í sjálfu sér, heldur verkfæri til að ná fram meginmarkmiðum Viðreisnar: stöðugum gjaldmiðli, lægri vöxtum fyrir heimilin og fyrirtækin, heilbrigðari samkeppni og frjálslyndara samfélagi.
Engin öfl í landinu, hvorki i stjórnmálum né hagsmunasamtökum, eru á móti lágum vöxtum, stöðugum gjaldmiðli, samkeppni og frelsi til orða og athafna. En afgerandi meirihluti þjóðarinnar er á móti að Ísland verði ESB-ríki. Hvers vegna leitaði Viðreisn ekki samstarfs við aðra stjórnmálaflokka að vinna Íslandi til heilla? Hvers vegna sundrar Viðreisn þjóðinni þegar sátt er í boði? Hvers vegna grefur Þorgerður Katrín utanríkisráðherra undan samstarfi Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum? Ekki er ástæðan lægri vextir og krónan.
Fjölpóstur Þorgerðar Katrínar og Daða Más til flokksmanna er, svo það sé sagt hreint út, stórundarlegur. Þorgerður Katrín og Viðreisn hafa í hálft ár farið hamförum að sannfæra þjóðina um ágæti ESB-aðildar. Að þeirra frumkvæði eru dregin inn í umræðuna óskyld atriði s.s. forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, Grænlandsmál og átök á alþjóðavísu. En nú heitir það að vextir og krónan séu höfuðmálið.
Skilaboð forystu Viðreisnar til flokksmanna gera ekki ráð fyrir að söfnuðurinn stígi í vitið. ,,Tæpur helmingur þjóðarinnar studdi Viðreisn í þessu verkefni,“ skrifa þau formaður og varaformaður. Sama dag og þau senda póstinn sýnir viðhorfskönnun 9,7 prósent fylgi Viðreisnar. Smávegis munur er á þessum hlutföllum, helmingi þjóðarinnar og tæpum tíu prósentum. Lúta viðreisnarprósentur öðrum lögmálum en hversdagslegur hlutfallareikningur?
Fjölpósturinn er játning Þorgerðar Katrínar og Daða Más að eina erindi Viðreisnar í landsmálin er að valda sundrungu og leiðindum. Punktur.
Hafi Þorgerður Katrín ímyndað sér að hún gæti setið áfram sem utanríkisráðherra tekur fjölpósturinn af öll tvímæli. Hún getur það ekki. Pósturinn verður þýddur og sendur til framkvæmdastjórnarinnar í Brussel og utanríkisráðuneyti allra 27 ríkja ESB. Í Brussel og höfuðborgum álfunnar má heyra diplómatísk bræðiöskur. Að utanríkisráðherra Íslands, sem kynnir sig í útlöndum sem einlægan ESB-sinna, skuli voga sér að játa opinberlega að ESB-umsóknin sé yfirvarp og þjóðaratkvæðagreiðsla sé nánast hönnuð til að niðurlægja Evrópusambandið er of mikið af því góða. Þorgerður Katrín verður persona non grata í ESB-Evrópu.
Kristrúnu forsætisráðherra er vandi á höndum. Hún getur sýnt myndugleika og slitið stjórnarsamstarfinu strax. Stjórnarandstaðan myndi eflaust leyfa Kristrúnu og Samfylkingu að sitja í minnihlutastjórn fram að kosningum, sem yrðu í janúar eða febrúar. Í öðru lagi getur Kristrún hallað sér aftur og leyft Þorgerði Katrínu að grafa sér og Viðreisn dýpri gröf – í von að fylgi Samfylkingar hrynji ekki líka ofan í holuna.
Með Þorgerði Katrínu sem formann verður enginn þingflokkur Viðreisnar eftir næstu kosningar. Stofnandi flokksins og fyrsti formaður, Benedikt Jóhannesson, hefur ekki tjáð sig opinberlega eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann er í símanum.