Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hvetur landsmenn til að beita eigin dómgreind og láta ekki úrtölufólk hræða sig í að skoða aðild að Evrópusambandinu. Í langri og ítarlegri grein á Vísi í dag hæðist hann að þeim sem segja að ekki sé neitt um að semja við Evrópusambandið og að lífskjör muni hrynja niður í „austurevrópskt meðaltal“.
Þórður Snær: „Sagan sýnir nefnilega að þessir menn hafa oftar en ekki rangt fyrir sér“