„Hæðin víðáttumikla suður í hafi er enn á sínum stað og heldur áfram að beina til okkar röku og hlýju lofti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings í dag.
Útlit er fyrir vestan og suðvestan 3 til 10 m/s á landinu. Bjart með köflum norðan- og austanlands. Á Suðvestur- og Vesturlandi er útlit fyrir þokuloft og súld áveðurs.
Hiti verður 10 til 23 stig og að vana hlýjast austanlands.
Á morgun mun rigna á öllu landinu á einhverjum tímapunkti. Þá er útlit fyrir meiri vind og meira úrkomumagn, sunnan og suðvestan 8 til 15 m/s.
„Úrkomusvæðið berst þó líklega ekki að neinu ráði yfir Austfirði og Austurland fyrr en um kvöldið og því er enn einn hlýr dagurinn í vændum á þeim slóðum á morgun,“ segir veðurfræðingur.
Á föstudag og fram í byrjun næstu viku má búast við að kólni norðan- og austanlands þar sem verður norðanátt og dálítil væta á köflum. Sunnan heiða verður bjart og hlýnar.