„Það er frábært að fá tækifæri til þess að velta þessari spurningu fyrir mér. Af nógu er að taka. Hitt er svo annað að ég efast um að þau atriði sem ég nefni hefðu haft mikil áhrif á mig þegar ég var tvítugur. Þroskinn til að læra þessar lexíur var einfaldlega ekki til staðar – og það tók tíma að byggja hann upp,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði hefði viljað vita þetta þrennt tvítugur:
1. Þolinmæði og ást
„Langafi minn Willjam Þorsteinsson sagði víst alltaf: börnin slípuðu af mér hornin. Mamma sagði líka alltaf: þú getur ekki elskað börnin þín of mikið.
Ég er núna sammála þeim báðum — núna.
Ég var of upptekinn af hlutverki uppalandans með elstu börnin.
Það er eitt af því fáa sem ég sé eftir.
Börn verða að fá að læra á heiminn af eigin mistökum, allavega upp að vissu marki.
Því eldri sem ég verð því rýmri finnst mér að þau mörk eigi að vera. Rúmur tími, mikil þolinmæði og kærleiksríkt aðhald hefur reynst mér best. Nú njóta barnabörnin og hundurinn þess. Vona ég.“
2. Talaðu varlega
Ég var yfirlýsingaglaður sem ungur maður. Það hefur sem betur fer rjátlað af mér.
Stór orð eiga stundum við, en það verður að nota þau varlega.
Annars missa þau merkinguna.
Stór orð eru líka líklegri til að meiða, þótt það sé ekki ætlunin. Lítil orð geta mjög vel skilað sama árangri, sé þeim skipulega beitt.“
3. Finndu verkefni sem yfirtaka hugann
Að takast á við erfið verkefni, hvort sem er í vinnu eða einkalífi, tekur toll.
Mín reynsla er að mikilvægt sé að eiga sín eigin verkefni, utan þess, sem taka hugann allan.
Verkefni sem eru þannig að þau veita frí frá öllu öðru.
Taka yfir hugann.
Í mínu tilfelli er gott bras besta leiðin til að tæma hugann og núllstilla – ná núvitund. Besta brasið fyrir mig eru áskoranir sem líklegt, en ekki víst, er að ég muni leysa. Jeppaferðir að vetri (góðar festur), viðgerðir (helst án varahluta – og enn betra ef ekki er gert ráð fyrir að gert sé við hlutinn yfirhöfuð) eða fara í fjallgöngu (á fjall sem ekki er göngustígur upp á – í þoku). Gott bras er gulli betra.“