Kastljós fór á stúfana í dag og spurði almenning hvað honum fyndist um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræðurnar við ESB.
„Það þarf að skoða hver má setja pening í svona baráttu,“ segir Íris Sverrisdóttir, einn viðmælanda.
Magnús Ragnar Magnússon var nokkuð sáttur við niðurstöðuna enda einn þeirra sem kusu nei. „Mér fannst þetta bara vera orðið rugl. Tómt rugl,“ segir hann, spurður um ástæðuna fyrir sínu vali.
„Þetta er bara lýðræðislegt val og maður verður að taka því,“ segir Ómar Sigurðsson. Hann segir niðurstöðuna þó ekki hafa áhrif á sálarlíf sitt.