Kona sem glímdi við heimilisleysi og nýtti sér Kaffistofu Samhjálpar segir sorglegt ef ekki tekst að finna henni nýtt húsnæði.
200 manns koma daglega á Kaffistofuna.
Framtíð og málefni Kaffistofunnar voru rædd á fundi borgarráðs í gær. Meirihlutinn lagði þar áherslu á að finna henni nýtt húsnæði.
Mikilvægt samfélag sem sækir í Kaffistofuna
María Albertsdóttir var heimilislaus um tíma og nýtti sér þá Kaffistofu Samhjálpar. Þar fékk hún að borða og eiga sama stað innandyra. Hún segir það hafa gefið sér ótrúlega mikið að geta leitað þangað.
„Bara þetta samfélag að fá að vera með öðru fólki sem er bara á sama stað. Manni kannski leið ekkert alltaf vel - en að geta farið eitthvað.“
Nú lítur út fyrir að kaffistofan verði án húsnæðis um mánaðamótin. Til stóð að opna nýtt húsnæði á Grensásvegi fyrir tæpum mánuði en byggingarleyfið var fellt úr gildi.
Íbúar í nágrenninu höfðu ítrekað mótmælt staðsetningunni og sögðu, meðal annars, að starfsemin ætti ekki heima í íbúðahverfi.
María telur að fordómar og fáfræði hafi þar ráðið för. „Ótrúlega sorglegt að það sé ekki bara hægt að finna hentugt húsnæði fyrir Kaffistofuna því Kaffistofan verður að vera til. Við erum að gefa 150-200 máltíðir á dag.“
Starfar nú sem vaktstjóri á Kaffistofunni
Á Kaffistofuna leitar fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður, heimilisleysi, fíknisjúkdóma og fátækt.
Eftir meðferð starfaði María sem sjálfboðaliði á Kaffistofunni og er nú vaktstjóri. Hún segir engan dag vera eins en að allir dagar fari í að mæta fólki sem glími við erfiðar aðstæður.
Undanfarna mánuði hefur Kaffistofan verið í bráðabirgðahúsnæði í Fíladelfíukirkjunni. Þar er opið alla daga frá 10-14.
Málefni kaffistofunnar voru rædd á fundi borgarráðs í gær. Þar kom fram að meirihlutinn legði áherslu á að finna henni nýjan stað í borginni.
Ekki hefur náðst í Hildi Björnsdóttur, borgarstjóra, í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
María segir mikilvægt að ekki sé litið á Kaffistofuna sem endastöð þeirra sem þangað leita. Starfsfólk og sjálfboðaliðar hafi hjálpað mörgum að komast inn í langtímaúrræði til að fá lausn sinna mála. „Þetta er ekki endastöð, fólk getur risið upp. Ég er vitnisburður um það til dæmis.“