Það er fátítt að fólk raski friðnum í þingsal Alþingis að sögn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins. Gera þurfti hlé á þingfundi fyrr í dag vegna mótmæla sem brutust út á þingpöllum þegar Snorri var að flytja ræðu um fyrirhugaða brottfararstöð.
„Maður er náttúrulega alls ekki vanur því að það sé verið að raska friðnum inni í þingsal þannig að fyrst þarf maður að gera sér grein fyrir hvað sé á seyði, hvaða menn eru þetta,“ segir Snorri í samtali við mbl.is.
„Síðan lítur maður upp og þá kemur í ljós að þarna er hópur ungmenna, að því er virtist, sem var með flautur að gera athugasemdir við frumvarp um brottfararstöð. Þegar maður gengur úr skugga um að þarna séu menn ekki með eitthvað enn vafasamara í hyggju þá verður þetta nú frekar broslegt.“
Illa vegið að Snorra
Fannst þér mótmælin beinast gegn þér persónulega?
„Mér fannst náttúrulega illa að mér vegið, framsögumaður málsins var nýbúinn að klára og þetta er mál meirihlutans, þannig að ég veit ekki hvað ég á að lesa í það, en þarna stóð ég og gat ekki annað,“ segir hann.
Hann hafi svo fengið að taka aftur til máls þegar mótmælendurnir voru á bak og burt.
„En það er miður að uppákomur hafi orðið fleiri en þessi sem rýra þetta traust sem við sýnum hvert öðru með því að hafa þingpallana opna,“ segir Snorri.
Mikið óyndisúrræði
Hann segir að ýmis félagasamtök og aðgerðasinnar hafi með málflutningi sínum bjagað umræðuna um brottfararstöð hér á landi.
„Þó að þetta sé mikið óyndisúrræði og enginn kæri sig í raun og veru um að þurfa að grípa til þeirra ráðstafana sem gerðar eru með frumvarpinu, þá er það talið nauðsynlegt í ljósi öryggishagsmuna.“
Hann segist þó hafa goldið varhug við ýmsum þáttum frumvarpsins.
„Sú nálgun að vera með sífellda plástrastarfsemi og sífellt kostnaðarsamari úrræði til að glíma við afleiðingar misráðinnar útlendingastefnu er ekki lausnir til framtíðar,“ segir hann.
„Það ætti miklu frekar að efla bæði lagaumgjörðina og forvarnirnar á landamærum frekar en að stofna til svona úrræðis sem enginn veit hvernig getur undið upp á sig í kostnaði, utanumhaldi og rekstri.“