Flokkurinn fékk 3,3 prósent atkvæða og tapaði sínum eina fulltrúa í borgarstjórn. Flokkur fólksins hefur verið í meirihlutasamstarfi með Samfylkingu, Vinstri grænum, Sósíalistaflokknum og Pírötum í rúmt ár.
„Ég vil sérstaklega þakka Inga Sæland formanni flokksins fyrir traustið, stuðninginn og samstarfið á þessari vegferð. Ég vil einnig þakka öllu því öfluga fólki sem var með mér á lista, sjálfboðaliðum, stuðningsfólki og öllum þeim sem greiddu okkur atkvæði. Ég er sannfærður um að við höfum opnað mikilvæga umræðu og sett málefni fólks sem oft gleymist skýrar á dagskrá,“ segir hann í færslu á Facebook.
Hann segir áhyggjuefni að rödd sem sterkast hafi talað fyrir málefnum eldri borgara, öryrkja og fólks sem stendur höllum fæti heyrist ekki lengur í borgarstjórn.
„Þessi úrslit kalla á að við söfnum vopnum okkar, förum strax í að efla grasrótina, styrkja ungliðastarf og tryggja að flokkurinn verði með öflugt framboð um allt land,“ segir hann að lokum.