Önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um stofnun sérstaks innviðafélags sem ætlað er að annast fjármögnun og uppbyggingu samgöngumannvirkja hefur farið fram á Alþingi í dag og stendur hún enn yfir þegar þessi orð eru skrifuð. Einnig stóð til að ræða samgönguáætlun og fjármálaáætlun en alls er óljóst hvort það náist í kvöld.
Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, er ekki bjartsýnn á að það takist að ljúka þingstörfum í samræmi við starfsáætlun.
„Þetta eru stór mál. Innviðafélagið, sem er náttúrulega algjörlega nýtt konsept og margir enn þá á mælendaskrá í sinni fyrstu ræðu sem er ekkert óeðlilegt. Ég held við séum nú komin þokkalega á veg í samgönguáætlun en fjármálaáætlun er algjörlega órædd. Það er Eldhúsdagur á miðvikudaginn og mér skilst að hann eigi að standa, þannig að það þarf nú ansi mikið að ganga upp svo þingið eigi að klárast í vikunni,“ sagði hann í fréttum Sýnar á sjöunda tímanum í kvöld.
Þurfi að semja
Fulltrúar stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðu eru ekki búnir að semja um þinglok, að sögn Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar.
„Við þingflokksformenn erum að hittast afar reglulega og erum að fara að hittast aftur hér síðar í kvöld. Við erum jú stödd í stórum málum sem hófust í umræðu í síðustu viku og hafa verið rædd vel og lengi. Mín tilfinning er nú þannig að um leið og við náum samningum þá myndi nú rakna fljótt upp en það þarf að semja svo að það gangi allt hratt og vel.“
Stefán segir stór ágreiningsmál standa eftir.
„Auðvitað eru þetta mörg mál sem eru undir og misstór. Í mörgum þeirra deilum við ekki sömu sýn og eitthvað af þessum málum er mögulega hægt að gera lagfæringar á. Í öðrum erum við bara ósammála, ég meina þannig gengur þetta fyrir sig hér og svo sjáum við bara hver niðurstaðan verður. Hún kemur bara í ljós.“
Tekist var á um Evrópusambandið á þinginu í dag og þurfti forseti að biðja þingmenn um að halda ró sinni í umræðum.
Gætu náð saman eftir helgi
Guðmundur segir þinglok alltaf kalla á samvinnu flokkanna og fulltrúar þeirra vinni að því í sameiningu.
„Það hefur gengið mjög vel í þingstörfunum í allan vetur. Við höfum verið að klára mál jafnt og þétt í gegnum allan þingveturinn og ég bind bara miklar vonir við að það muni ganga vel hérna á lokametrunum líka.
Við höfum líka verið að ræða ákveðin þingmannamál sem þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt til. Ég er nú bara bjartsýnn á að við náum að semja fljótlega, hvort sem það verður fyrir eða eftir helgi, það á bara eftir að koma í ljós en við erum bara bjartsýn.“