Fjármálaráðherra segist sammála verðandi borgarstjóra í Reykjavík um að endurskoða þurfi samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Brýnt sé þó að það leiði ekki til tafa á framkvæmdum.
Í samstarfssáttmála meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík sem kynntur var í gær segir að hefja eigi samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélögin um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða.
„Við ætlum okkur að taka stórar ákvarðanir í samgöngumálum borgarinnar,“ sagði Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins og verðandi borgarstjóri við þetta tilefni. „Reykjavík ræður þessu ekki ein - það er samtalið sem er framundan,“ sagði Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og verðandi forseti borgarstjórnar.
Samhljómur um samgöngusáttmálann
Í samstarfssáttmála nýmyndaðs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar í Hafnarfirði er tekið í svipaðan streng og þeir bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu sem fréttastofa ræddi við segjast sama sinnis, en leggja áherslu á að endurskoðun verði ekki til þess að tefja fyrir framkvæmdum.
„Ég tek undir með borgarstjóra að þarna eru atriði sem við þurfum að ræða að nýju,“ segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.
Verðum að taka samtalið
Sem dæmi um gjöld sem ekki hafi verið útfærð nefnir ráðherra svokölluð flýti- og tafagjöld sem eru vegtollar og -gjöld sem eiga annars vegar að stýra umferð og hins vegar fjármagna vegaframkvæmdir.
Spurður hvort þessi gjöld verði þá útfærð núna svarar Daði: „Ég held að við verðum allavegana að taka samtalið um hvernig við stöndum að þessu.“
Má ekki tefja fyrir
Ertu hlynntur endurskoðun? „Já, ég held að einhverskonar endurskoðun þurfi að fara fram. Og umræða um hvernig við munum standa að fjármögnun sáttmálans er nauðsynleg. Það er hins vegar þannig að mörg af þessum verkefnum eru mjög brýn og það er mikilvægt að þessi endurskoðun tefji ekki fyrir samgöngubótum á höfuðborgarsvæðin, þær eru orðnar mjög brýnar.“
Fjármálaráðherra segir næstu skref að setjast niður og ræða málin við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. „Þessir meirihlutar eru ekki allir orðnir til ennþá, en um leið og það er orðið er þetta forgangsmál.“