„Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ - Vísir

„Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ - Vísir

„Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ - Vísir

Eins og fram hefur komið á Vísi stendur hópur málsmetandi fólks í því að fá leyfi til að grafa upp bein þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Hópurinn vill taka sýni úr þeim beinum sem hvíla í þjóðargrafreit á Þingvöllum og senda í DNA-greiningu. Jónas lést í Kaupmannahöfn 26. maí 1845, var einungis 37 ára gamalla og var jarðaður í Assistens-kirkjugarðinum í Kaupmannahöfn. 

Árið 1946 voru beinin grafin upp. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður fór í gröfina þar sem voru fjögur lík og tók bein sem hann flutti til Íslands. Matthías taldi engan vafa leika á að þar væru líkamsleifar Jónasar sem grafnar voru í þjóðargrafreit á Þingvöllum 16. nóvember 1946, á fæðingardegi skáldsins.

Í umræddum hópi eru þau Elín Hirst fjölmiðlakona, Páll Valsson ævisöguritari Jónasar, Kári Stefánsson læknir, Kristján Valur Ingólfsson fyrrverandi vígslubiskup, Agnar Helgason líffræðilegur mannfræðingur og Lárus Jónsson og Halldór Hilmisson kvikmyndaframleiðendur hjá Republik.

Jónas í sýruheldum pappaöskjum í Kársnesi

Stefán Pálsson lætur ekki sitt eftir liggja og bendir á þætti sem gætu skipt máli í þessu samhengi. Hann segir að í fyrsta lagi sé beinamálið skemmtilegt dæmi um áhrifamátt skáldsagna.

Mynd eftir Déssington sem gerð var eftir tveimur skissum Helga Sigurðssonar, læknanema, af Jónasi á líkbörunum. Myndin birtist fyrst á titilsíðu bókarinnar Ljóðmæli og önnur rit, eftir Jónas Hallgrímsson 1883.

„Það er fyrst og fremst stólpagrín Halldórs Laxness í Atómstöðinni sem plantaði þeim grun hjá fólki að beinagrindin í gröfinni hafi ekki verið af Jónasi,“ segir Stefán. Og í öðru lagi þurfi menn að hugsa leikjafræðina til enda: „Segjum að dómstólar og Þingvallanefnd gefi grænt ljós á að rannsaka beinin. Þá getur tvennt gerst:

a) Í ljós kemur að EKKI sé um að ræða líkamsleifar skáldsins. Hvern djöfulinn eiga menn þá að gera? Senda póst til kirkjugarðsins í Kaupmannahöfn og fá að skila beinunum? Eða breyta áletruninni á steininum í: „Gröf óþekkta Kaupmannahafnarbúans“?

b) Í ljós kemur að beinin SÉU í raun þau sem talið var. Þá virkjast fornminjalög sem segja okkur að það sé vissulega heimilt að grafa upp líkamsleifar en að því loknu verða þær ekki grafnar aftur á sama stað heldur færðar Þjóðminjasafninu til varðveislu. Það yrði óneitanlega kómískt að útskýra fyrir ferðamönnum í Þjóðargrafreitnum að þar hafi þjóðskáldið Jónas legið í nokkra áratugi en núna sér hann í sýruheldum pappaöskjum í Kársnesi í Kópavogi...“

Mun vekja heimsathygli ef beinin verða grafin upp

Fjölmargir láta málið sig varða í athugasemdum og sýnist þar sitt hverjum eins og þar stendur. Enn eru líkamsleifar Jónasar bitbein öllum þessum árum síðar. 

Egill Helgason sjónvarpsmaður er áhugasamur um framvindu málsins.vísir/vilhelm

Egill Helgason sjónvarpsmaður er enn einn áhugamaður um bein Jónasar og Þjóðargrafreitinn. Hann telur víst að ef beinin verði grafin upp muni það vekja heimsathygli.

„Ef ég væri fréttastjóri á stórum fjölmiðli gæti ég ekki staðist svo spaugilega frétt – lítil þjóð grefur upp ástkærasta skáld sitt og frelsishetju vegna gruns um að þar sé í raun danskur slátrari. 

Ég sé ekki betur en að þetta myndi gerast undir kastljósum heimspressunnar með sjónvarpsupptökur rúllandi þegar kistan - eða það sem er eftir af henni – kemur upp. Jafnvel bein útsending víða. Væri verðugur hluti þessarar framhaldssögu - en alls ekki endirinn því hvað á til bragðs að taka ef kemur í ljós að þarna hefur hvílt allsendis ókunnugur maður,“ spyr Egill á sinni Facebooksíðu.

Vísi bárust tvö ljóð sem sett hafa verið saman um þetta, annað eldra eftir x og hitt nýrra eftir y. Þau eru svohljóðandi:

„Leirinn fær alltaf gull og hrós“

LAUGARDAGURINN 16. NÓVEMBER 1946.

Þjáning og böl féll þér í skaut,

þyngri refsingu enginn hlaut:

Minningu þína eftir öld

ásækir fylking hjartaköld.

Það hefnir sín oft að yrkjaljóð,

sem umkomulitla og snauða þjóð

hefja í ódauðleikans ljós,

—en leirinn fær alltaf gull og hrós.

Úr Þjóðviljanum 1946.

Yfirbragðsdökk og úlfgrá hjörð

afneitar þinni fósturjörð.

Hún sækir þig yfir úfin höf

ofaní kalda, djúpa gröf.

Og galdramenn allir ganga á þing

að gera þér mesta svívirðing.

Loks eru brotnu beinin þín

borin af Gvendi Hagalín.

x.

„Góðvinur okkar, Palli Vals“

Mánudagurinn 1. júní 2026

Fylkir nú liði fögur sveit,

fegurri varla nokkur leit.

Bein vilja upp úr grænni gröf,

gæti þó orðið nokkur töf.

Smávinir fagrir, foldarskart,

fuglarnir syngja um ansi margt.

Skáldinu entist aldur til

að yrkja um það flest, svona hérumbil.

Vísindin efla alla dáð,

ekki er það neinum vafa háð.

Einar er granni góður Ben,

golan þýtur um holt og fen.

Þröstur syngur á grænni grein,

gömul þar hvíla og lúin bein.

Grefur þau upp með grun um fals,

góðvinur okkar, Palli Vals.

y.

Miklar tilfinningar í spilinu

Áður nefndur Páll Valsson segist þekkja fyrra ljóðið en vill ekki nefna hver höfundurinn er.

„Ég held að viðkomandi, sem var vandur að virðingu sinni, hafi ekki viljað stíga fram, enda voru í þessu miklar tilfinningar, ekki síst milli fylkinga rithöfunda,“ segir Páll. „Allt er heimulegt í heimi hér...”

Páll Valsson er helstur sérfræðinga Íslands í æfi Jónasar og var hann fenginn til að veita álit, sem hann og gerði.vísir/hulda margrét

Páll segir miklar tilfinningar í spilinu. Guðmundur Hagalín hafi verið í félagi borgaralegra rithöfunda sem létu sig málið varða, klofningur úr RSÍ og „kommarnir“ voru fúlir út í þá. Einnig tengdist þetta mál á sínum tíma átökum milli Halldórs K. Laxness og Hriflu-Jónasar. Málið ristir djúpt í menningarpólitík fyrri tíma.

„Allt beinamálið litast af svona undirtónum, pólitískum og menningarlegum,“ segir Páll.

Og svo eru menn sem vilja hafa þetta í flimtingum, háðfuglarnir svokölluðu?

„Jú, þeir fengu nú sannarlega efnivið til að moða úr,” segir Páll og kímir.

#hefnir #oft #sín #yrkja #það

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892516d/-thad-hefnir-sin-oft-ad-yrkja-ljod-

📰 Aðrar fréttir

US House votes to halt Iran war, in rebuke to Trump 
📅 03.06.2026 👁️ 1
US House votes to halt Iran war, in rebuke to Trump 
The US House of Representatives passed a measure that seeks to halt President Donald Trump from taking further military action in Iran.The 215-208 vot...
Þúsund mynda­vélar fylgjast með því sem fram fer á flug­vellinum - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Þúsund mynda­vélar fylgjast með því sem fram fer á flug­vellinum - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar kynnumst við einum anga af margbrotinni starfsemi á vellinum. Við kíkjum bak við luktar dyr í Leifsstöð, inn í bakrými sem kallas...
Mikilvægt að hleypa ungu stjórnmálafólki að borðinu
📅 03.06.2026 👁️ 0
Mikilvægt að hleypa ungu stjórnmálafólki að borðinu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók sæti á Alþingi í morgun eftir tæplega árslangt námsleyfi í Bandaríkjunum. Stoppið á Alþingi var hins vegar stutt en ...
Sjúkt athæfi - Kastaði kettlingum út um bílglugga á ferð - DV
📅 03.06.2026 👁️ 1
Sjúkt athæfi - Kastaði kettlingum út um bílglugga á ferð - DV
Lögreglan í Alabama í Bandaríkjunum hefur handtekið 21 árs gamlan mann, Thomas Ronald Liccione að nafni, fyrir alvarlegt dýraníð. Liccione kastaði fim...
Chinese spies using job websites to target government workers, MI5 warns
📅 03.06.2026 👁️ 1
Chinese spies using job websites to target government workers, MI5 warns
Chinese spies are posing as recruitment agents to trick UK government and military staff into disclosing state secrets, MI5 has warned.In a joint warn...
Fangar sem vísað verði á brott frjálsir ferða sinna
📅 03.06.2026 👁️ 1
Fangar sem vísað verði á brott frjálsir ferða sinna
Föngum sem vísað verður úr landi á grundvelli nýrra laga um fullnustu refsingar munu ekki halda áfram afplánun í heimalandi sínu, samkvæmt Rögnu Bjarn...
Martha um Sjálfstæðisflokkinn – „Flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa“ - DV
📅 03.06.2026 👁️ 2
Martha um Sjálfstæðisflokkinn – „Flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa“ - DV
Martha Árnadóttir stjórnmálafræðingur segir styrk Sjálfstæðisflokksins á hægri vængnum hafa haldið róttækari öflum í skefjum. Ástæða þess að þetta haf...
Draumur Jökuls í Kaleo rætist senn á Þingvöllum
📅 03.06.2026 👁️ 1
Draumur Jökuls í Kaleo rætist senn á Þingvöllum
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir stórtónleika Kaleo og fleiri listamanna á Þingvöllum 20. júní. Á annað þúsund manns verða þar við gæslu og ýmis ...
Ás­laug getur fengið tæpar tíu milljónir í bið­laun - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 2
Ás­laug getur fengið tæpar tíu milljónir í bið­laun - Vísir
„Ég skil alltaf fólk þegar fólk fær á tilfinninguna að eitthvað sé ekki gert rétt eða að fólk sé að taka sér greiðslur sem ekki eiga rétt á sér,“ segi...
Upp­götvuð á götum Barcelona - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 1
Upp­götvuð á götum Barcelona - Vísir
Helena flutti til Barcelona síðasta haust og skráði sig í sex ára nám. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti. View this post on Instagram A post shar...
Hvað veistu um... Snæ­fells­nes? - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Snæ­fells­nes? - Vísir
Á Snæfellsnesi er að finna fjölbreytta náttúru – hraun, jökul, svartar sandfjörur, klettaborgir og falleg sjávarþorp með ríka sögu og menningu. Snæfel...
„Ó, mér líður svo vel“ - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
„Ó, mér líður svo vel“ - Vísir
Það var mikil ánægja í loftinu þegar tilkynnt var í dag að í nýjum lífsgæðakjarna Reita við Nauthólsveg yrði byggður leik- og grunnskóli Hjallastefnun...
Leik­ritið eigi sér­stak­lega erindi nú - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Leik­ritið eigi sér­stak­lega erindi nú - Vísir
Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar. Sýningin er frumsamin og um t...
„Við erum í fyrsta skipti komin í varanlegt skjól“
📅 03.06.2026 👁️ 1
„Við erum í fyrsta skipti komin í varanlegt skjól“
Reykjavíkurborg, Hjallastefnan og fasteignafélagið Reitir skrifuðu undir viljayfirlýsingu í dag um að Reitir byggi leik- og grunnskóla og leigi Hjalla...
Hjallastefnuskóli kemst í varanlegt skjól eftir fjögur ár á hrakhólum

Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 1
Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur - Vísir
Vindmyllurnar í Vaðölduveri verða alls 28 talsins og munu rísa í áföngum til ársloka 2027. Hver vindmylla er sett saman úr fjölda íhluta sem hafa veri...
Annað útkall Bjargar í dag vegna aflvana báts
📅 03.06.2026 👁️ 0
Annað útkall Bjargar í dag vegna aflvana báts
Björgunarbáturinn Björg í Rifi á Snæfellsnesi sinnti tveimur útköllum í dag. Björg var nýkomin til hafnar eftir fyrra útkallið þegar tilkynning barst ...
Tveir ákærðir fyrir líkamsárás: Brutu andlitsbeinin í manni - DV
📅 03.06.2026 👁️ 0
Tveir ákærðir fyrir líkamsárás: Brutu andlitsbeinin í manni - DV
Framhald aðalmeðferðar var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir tveimur mönnum sem ákærðir eru fyrir líkamsárás sem framin var 1. apríl árið 2023. Árás...
Draga afl­vana bát til hafnar nær Önd­verðar­nesi - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 1
Draga afl­vana bát til hafnar nær Önd­verðar­nesi - Vísir
Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að engin hætta hafi verið á ferðum en að draga hafi þurft bátinn til hafnar. Fram kom fyrr í dag að eldur kvik...
Lítur út fyrir að forsendur bresti en ekki endilega uppsögn kjarasamninga
📅 03.06.2026 👁️ 1
Lítur út fyrir að forsendur bresti en ekki endilega uppsögn kjarasamninga
Það eru nokkrar blikur á lofti í efnahagsmálum og flest bendir til þess að verðbólga, sem mældist 5,1% í síðustu mælingu, verði ekki komin undir 4,95%...
The end of Trump’s 'anti-weaponization' fund is another sign Republicans are fighting back
📅 03.06.2026 👁️ 2
The end of Trump’s 'anti-weaponization' fund is another sign Republicans are fighting back
President Donald Trump's plan to hand out $1.8bn (£1.3bn) in taxpayer funding to political allies lasted all of two weeks before his Department of Jus...
Allt á suðupunkti eftir dóminn á morðingja Henry Nowak - DV
📅 03.06.2026 👁️ 0
Allt á suðupunkti eftir dóminn á morðingja Henry Nowak - DV
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, gagnrýndi Nigel Farage, formann Umbótaflokksins (e. Reform UK), harðlega fyrir viðbrögð þess síðarnefnda við...
Police chief apologises to Henry Nowak's family over handcuffing and arrest
📅 03.06.2026 👁️ 2
Police chief apologises to Henry Nowak's family over handcuffing and arrest
The chief constable of Hampshire police has apologised to the family of Henry Nowak for the student being handcuffed and arrested as he lay dying.Chie...
Telja að Íslendingar veðji fyrir 7,5 milljarða á HM í knattspyrnu
📅 03.06.2026 👁️ 1
Telja að Íslendingar veðji fyrir 7,5 milljarða á HM í knattspyrnu
Gert er ráð fyrir að Íslendingar muni alls eyða um 7,5 milljörðum króna í veðmál á netinu í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer...
Rýnt í flókna stöðu Icelandair - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Rýnt í flókna stöðu Icelandair - Vísir
Við hittum einnig Áslaugu Örnu sem mætti aftur á Alþingi í dag en kvaddi jafnóðum, sjáum myndir af fyrstu vindmyllunni sem er risin í Vaðölduveri og h...
Israeli strikes kill nine in Lebanon as Hezbollah fires rockets over border
📅 03.06.2026 👁️ 1
Israeli strikes kill nine in Lebanon as Hezbollah fires rockets over border
Israeli strikes killed at least nine people in southern Lebanon on Wednesday, authorities said, as the Iran-backed armed group Hezbollah said it fired...
Umfangsmiklar svikatilraunir í gangi – Lögreglu aldrei borist jafn margar tilkynningar - DV
📅 03.06.2026 👁️ 0
Umfangsmiklar svikatilraunir í gangi – Lögreglu aldrei borist jafn margar tilkynningar - DV
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við smáskilaboðum sem eru að berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa dagana. Um er að ræða skilaboð se...
Undanþágur fyrir fyrstu kaupendur ekki nógu vel nýttar
📅 03.06.2026 👁️ 0
Undanþágur fyrir fyrstu kaupendur ekki nógu vel nýttar
Fjármálakerfið á Íslandi er talið sterkt og vel í stakk búið til að takast á við áföll. Skuldir heimila og fyrirtækja eru almennt hóflegar og vanskil ...
Ísraelskir læknar bjarga ófæddu barni með brautryðjendaaðgerð í móðurkviði
📅 03.06.2026 👁️ 0
Ísraelskir læknar bjarga ófæddu barni með brautryðjendaaðgerð í móðurkviði
Ísraelskir læknar bjarga ófæddu barni með brautryðjendaaðgerð í móðurkviði Fréttin3. júní 2026Erlent, VísindiLeave a Comment Ísraelskir læknar hafa fr...
Erfitt að reka fyrirtæki á Íslandi: Launin og leigan hækka en hagkerfið kólnar - DV
📅 03.06.2026 👁️ 1
Erfitt að reka fyrirtæki á Íslandi: Launin og leigan hækka en hagkerfið kólnar - DV
Undanfarin ár hefur íslenskt atvinnulíf staðið frammi fyrir kólnum hagkerfisins en á sama tíma hafa stórir kostnaðarliðir, t.d. laun og húsaleiga, hæk...
Ætlar að leita til evrópskra dómstóla falli málið honum ekki í hag
📅 03.06.2026 👁️ 1
Ætlar að leita til evrópskra dómstóla falli málið honum ekki í hag
Ivan Nicolai Kaufmann, kaupsýslumaður og aðaleigandi Vélfags, segir að verði niðurstaða í máli Vélfags gegn ríkinu neikvæð fyrir fyrirtækið og hann mu...
Manst þú eftir þessum sí­gildu sumarleikjum? - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Manst þú eftir þessum sí­gildu sumarleikjum? - Vísir
Flestir kannast eflaust við leiki á borð við stórfiskaleik, yfir og eitur í flösku en Jón rifjar í færslunni meðal annars upp leikina köttur og mús, t...
Skilur á­hyggjur af af­slætti en mun nýta heimildina eins og hægt er - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Skilur á­hyggjur af af­slætti en mun nýta heimildina eins og hægt er - Vísir
Líkt og Vísir fjallaði um í gær samþykkti Alþingi á mánudag frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um fullnustu refsinga. Með þeim verður hei...
Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur - Vísir
Þorgerður Katrín var í ítarlegu viðtali við Frosta Logason á efnisveitunni Brotkast sem ekki hefur farið leynt með þá afstöðu sína að hann vilji ekki ...
Spjallið með Frosta Logasyni | Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB?
📅 03.06.2026 👁️ 1
Spjallið með Frosta Logasyni | Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB?
Spjallið með Frosta LogasyniÍ þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt s...
Söfnuðu 600.000 krónum á þremur dögum
📅 03.06.2026 👁️ 0
Söfnuðu 600.000 krónum á þremur dögum
Katrín Rós Harðardóttir og Katrín Mjöll Björgvinsdóttir söfnuðu rúmum 600.000 krónum á aðeins þremur dögum til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ...
Natasha S. hlýtur Maí­stjörnuna - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Natasha S. hlýtur Maí­stjörnuna - Vísir
Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmæt...
Henry Nowak lést í handjárnum lögreglu sem trúði morðingjanum – mikil reiði grípur um sig í Bretlandi
📅 03.06.2026 👁️ 1
Henry Nowak lést í handjárnum lögreglu sem trúði morðingjanum – mikil reiði grípur um sig í Bretlandi
Henry Nowak lést í handjárnum lögreglu sem trúði morðingjanum – mikil reiði grípur um sig í Bretlandi Fréttin3. júní 2026Erlent1 Comment Morðið á hásk...
Reynsluboltinn í Hæsta­rétti hættur: „Þetta var komið gott“ - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 2
Reynsluboltinn í Hæsta­rétti hættur: „Þetta var komið gott“ - Vísir
Greint er frá starfslokum Ólafs Barkar á Instagramsíðu Hæstaréttar. Þar kemur meðal annars fram að hann hafi lokið embættisprófi frá Háskóla Íslands á...
Minnkandi stuðningur Repúblikana við hjónabönd samkynhneigðra
📅 03.06.2026 👁️ 0
Minnkandi stuðningur Repúblikana við hjónabönd samkynhneigðra
Innan við fjórir af hverjum tíu stuðningsmönnum Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum styðja rétt til hjónabands samkynhneigðra, samkvæmt nýrri könnun ...
Nýr meiri­hluti kynnir forgangslistann - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 0
Nýr meiri­hluti kynnir forgangslistann - Vísir
Í tilkynningu meirihlutans kemur fram að áhersla verði lögð á traustan rekstur, skilvirka stjórnsýslu, öfluga skóla og bætta þjónustu við íbúa á öllum...
Héraðssaksóknari með fleiri en eitt mál tengd meintum fjárdrátti lögmanns á sínu borði
📅 03.06.2026 👁️ 1
Héraðssaksóknari með fleiri en eitt mál tengd meintum fjárdrátti lögmanns á sínu borði
Héraðssaksóknari er með fleiri en eitt mál til meðferðar sem tengjast lögmanni sem sakaður er um misferli. Lögmaðurinn hefur verið kærður fyrir fjárdr...
Héraðssaksóknari með fleiri en eitt mál tengd meintum fjárdrætti lögmanns á sínu borði

Ætti að vera hægt að erfðagreina beinin
📅 03.06.2026 👁️ 0
Ætti að vera hægt að erfðagreina beinin
„Aðferðafræðilega ætti þetta að vera hægt,“ segir Snæbjörn Pálsson, prófessor í stofnlíffræði við Háskóla Íslands, um það að grafa upp bein í gröf Jón...
Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland - „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“ - DV
📅 03.06.2026 👁️ 1
Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland - „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“ - DV
Bandarískur ferðaáhrifavaldur sem kallar sig Passport Papi er nú staddur á Íslandi og finnst hann vera svikinn. Áhrifavaldurinn, sem einkum hefur afla...
Sir Alex Younger, former head of MI6, dies aged 62
📅 03.06.2026 👁️ 1
Sir Alex Younger, former head of MI6, dies aged 62
Sir Alex Younger, the former head of MI6, has died aged 62 after being treated for cancer.Sir Alex, who led MI6 between 2014 and 2020, held a career i...
Canary Green remove more than 500kg of waste during Las Galletas beach clean-up
📅 03.06.2026 👁️ 1
Canary Green remove more than 500kg of waste during Las Galletas beach clean-up
Environmental group Canary Green successfully organised a large community beach clean-up at Playa Los Enojados in Las Galletas, south Tenerife, on Sat...
Sænskir hægrimenn vilja lækka áfengiskaupaaldur
📅 03.06.2026 👁️ 0
Sænskir hægrimenn vilja lækka áfengiskaupaaldur
Fyrirkomulag áfengissölu er orðið að kosningamáli í Svíþjóð. Á dögunum tilkynnti þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar að flokkurinn vildi að áfengi...
Keili form­lega slitið - Vísir
📅 03.06.2026 👁️ 1
Keili form­lega slitið - Vísir
Greint er frá því í Lögbirtingablaðinu að hluthafar einkahlutafélagsins Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hafi tekið ákvörðun þann 12...
Ísfélagið svipt vigtunarleyfi í hálft ár - Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina - DV
📅 03.06.2026 👁️ 0
Ísfélagið svipt vigtunarleyfi í hálft ár - Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina - DV
Fiskistofa hefur afturkallað vigtunarleyfi Ísfélagið á Þórshöfn í hálft ár frá og með 1. júní vegna rofs á innsigli á hugbúnaði vigtar, segir í ákvörð...