„Það fyndna kemur oft fram í því hræðilega“
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

„Það fyndna kemur oft fram í því hræðilega“

„Það fyndna kemur oft fram í því hræðilega“

Undanfarinn vetur hefur verið annasamur hjá söng- og leikkonunni Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur sem hefur staðið á sviði Þjóðleikhússins, kennt og lesið inn hljóðbækur.

„Ég er svolítið þreytt en rosa nærð á sálinni. Það er svo mikið að gera, skemmtilegt að gera,“ segir Sigríður sem leikur í bæði Línu langsokk og Ormstungu flest kvöld vikunnar. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við hana í Segðu mér á Rás 1.

„Ég er mjög góð í að skipuleggja mig en ég er líka mjög bjartsýn manneskja þannig að það gengur einhvern veginn allt upp. Svo á ég líka ofboðslega gott fólk í kringum mig.“

Hún hefur þurft að finna gleðina í sorginni og það fyndna í hinu hræðilega.

Dýrmætt að gefa fólki þessa upplifun

Þegar Sigríður leikur í Línu langsokk allar helgar vandar hún sig mikið við að verja tíma með yngstu dóttur sinni sem er sjö ára.

„Og vera þá með henni, ekki bara setja hana fyrir framan sjónvarpið heldur gera eitthvað skemmtilegt saman. Svo fær hún stundum að koma með mér upp í leikhús og sitja í fanginu á mér á meðan það er verið að sminka mig.“

Hún segir það gefa sér mikið að taka þátt í barnasýningum og sjá andlitin á börnunum þegar þau upplifa leikhústöfrana. „Ég geymi það rosa mikið hjá mér, hvað þetta er dýrmætt starf og mikilvægt að gefa fólki þessa upplifun.“

Sigríður er ekki komin af neinum leiklistarættum og því alast börn hennar upp á svolítið annan hátt en hún sjálf. „Hún er leikarabarn, henni finnst ekkert sjálfsagðara en að koma með mér upp í Sýrland að talsetja og er byrjuð sjálf. Hún fer inn í stúdíó, setur á sig heyrnartól og finnst það ekkert mál.“

Ekki bara tilfinningarússíbani heldur eitthvað sem þurfti að laga

Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs
Sigríður Eyrún og eiginmaður hennar, Karl Olgeirsson.Sigga Eyrún / Sunna Ben

Eiginmanni sínum, Karli Olgeirssyni, kynntist Sigríður heima hjá foreldrum sínum. Þá voru þau Margrét Eir, Orri Huginn Ágústsson og Bjarni Snæbjörnsson að æfa söngleikjaprógramm og hann kom til að leika á píanóið. „Ég varð rosalega skotin í honum strax.“ Þetta var árið 2013.

„Hann er svo rólegur, það tók mig smá tíma að fá hann til að taka af skarið. Ég endaði á að gera það held ég.“ Ári síðar kepptu þau í Söngvakeppninni með lagið Lífið kviknar á ný.

Þau hjónin hafa gengið í gegnum ýmislegt og verið óhrædd við að tjá sig um það opinberlega. „Ég varð ólétt vorið 2014 og hann átti að fæðast 21. desember. Ég fór tvær vikur fram yfir og svo bara fór fæðingin ekki vel. Það var náttúrlega bara rosalega erfitt.“

Hún hafi ekki fengið viðeigandi aðstoð á spítala þegar fæðingin fór í gang sem varð til þess að drengurinn, Nói Hrafn, náði ekki að koma heill á húfi í heiminn. „Það var svo margt sem fór úrskeiðis. Ég er með rosalega sterka réttlætiskennd og maður berst alltaf fyrir börnunum sínum. Þótt hann hafi verið dáinn þá vildi ég berjast fyrir honum og við bæði.“ Hún hafi því tjáð sig opinberlega og kært málið.

Það hafi verið ákveðin heilun í að bæði landlæknir og ríkið hafi viðurkennt mistök og beðist afsökunar. Landlæknir hafi tekið undir 15 af 16 kæruliðum. „Þetta var ekki bara einhver tilfinningarússíbani fyrir okkur heldur var þetta í alvörunni eitthvað sem þurfti að laga.“

Las athugasemdir um útlit sitt eftir að hafa misst fóstur

Ferlið tók um þrjú ár en Sigríður segir lífið hafa haldið áfram á meðan. „En það var mjög erfitt. Mér finnst mjög mikilvægt að tala um það en í kjölfarið missti ég fóstur nokkrum sinnum.“

„Svo fórum við í frjósemismeðferð sem tók líka rosalega á, líkamlega og andlega fyrir mig.“

Verandi opinber persóna hafi hún fengið ýmsar athugasemdir um sjálfa sig og las til að mynda hvað hún væri orðin feit. „Ég tók þátt í Söngvakeppninni, nýbúin að missa fóstur og er samt að halda áfram, eins og við gerum, af því að maður þarf að mæta í vinnuna og þetta er vinnan mín. Þá eru komment um hvernig maður lítur út,“ segir Sigríður sem hugsaði þá með sér hvað þetta fólk ætti bágt.

„Mér fannst samt alltaf svo gott að fá að halda áfram að vinna.“

Hún minnist augnabliks sem henni þótti magnað, sér í lagi vegna þess að hún hafi unun af því að gera efni fyrir börn. Í vikunni sem sonur þeirra var jarðsettur fékk Sigríður símtal frá teiknimyndaframleiðanda sem tjáði henni að Pixar hefði samþykkt að hún skyldi leika Gleði í Á röngunni, eða Inside Out. „Já en ég kemst ekki strax, er upptekin í þessari viku,“ svaraði hún.

Teiknimyndin snýst um að lifa með gleði og sorg saman og kom verkefnið því á hárréttum tíma. „Bjarni vinur minn dró mig líka inn á Improv Ísland námskeið og það hjálpaði mér svo mikið að leita að því fyndna. Því það fyndna kemur oft fram í því hræðilega.“

Lífið heldur alltaf áfram og núna á Sigríður sjö ára dóttur, Rán. „Hún er algjör orkusprengja, ótrúlega skemmtileg. Hún er eins og engill, með hvítt krullað hár, risastór augu og alltaf glöð og alltaf í stuði. Hún er frábær.“

„Við erum stundum svolítið þreytt því hún er svolítið orkumikil en hún er ótrúlega skemmtileg.“

Hefur lært að eyða ekki tíma í fólk sem finnst hún ekki skemmtileg

Sigríður fór í framhaldsnám hjá söngleikjadeild breska leiklistarskólans Guildford þar sem hún bjó í tvö ár og hélt síðan til Kanada á hin ýmsu söngnámskeið. „Ég var ekkert búin að gera mikið hérna heima áður en ég fór út. Ég var búin að vera í FÍH, söngskólanum og menntaskólasýningum.“

Hún segir námið erlendis hafa verið skemmtilegt en erfitt að því leyti að hún hafi lent í leiðinlegum bekk þar sem mikil samkeppni ríkti.

Hún er þó mikil bjartsýnismanneskja og hefur lært að sjá það góða í lífinu og velja sér fólkið sem hún vill vera innan um. „Ég hef ekki mikinn tíma fyrir fólk sem finnst ég ekki skemmtileg. Það tók mig alveg tíma að læra þetta og ég er enn þá alltaf að læra þetta.“

Bjartsýnin helst þó saman í hendur við ást hennar á söngleikjum. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum söngleikjum og haldið úti tónleikaröðinni Söngleikjastælar ásamt Bjarna Snæbjörnssyni. Þau kynntust árið 2007 í söngleiknum Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu og urðu strax eins og systkini.

Glöð að fá að verða eldri

Sigríður fagnar fimmtugsafmæli sínu þann 9. maí með því að leika í tveimur sýningum af Línu langsokk og svo í Ormstungu daginn eftir. „Ég er svo glöð að fá að verða eldri og geta enn þá mætt í ræktina og leikið og dansað. Mér finnst ég bara aldrei hafa verið hraustari.“

Það verður nóg um að vera hjá Sigríði í sumar þegar leikhúsin loka, hún verður með hádegistónleika í Eldborg eina vikuna og svo ætlar hún að ferðast til Svíþjóðar með fjölskylduna. „Ég er búin að lesa svo margar sænskar glæpasögur fyrir Storytel að ég ætla að fara í mína eigin glæpasagnagöngu.“

Rætt var við Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur í Segðu mér á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

#fram #fyndna #hræðilega #kemur


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-04-18-thad-fyndna-kemur-oft-fram-i-thvi-hraedilega-472964

📰 Aðrar fréttir

Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu
📅 23.10.2026 👁️ 1
Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu
„Hvað er að þér? Ertu lasinn maður? Ég held í alvörunni að það sé eitthvað að þér,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við Andrew Feinberg, blaðaman...
Ó­ljóst hvers vegna þeir hittust í „völundar­húsi“ bílastæða­hússins - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Ó­ljóst hvers vegna þeir hittust í „völundar­húsi“ bílastæða­hússins - Vísir
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Höfðatorgsmálinu svokallaða, sem nú hefur verið birtur. Þrír voru ákærðir í málinu og voru tveir þeir...
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli
Á morgun er fyrsti dagur vetrar og frost í veðurkortum víða um land fyrir helgina.Skíðaiðkendur á Akureyri hafa horft löngunaraugum upp í Hlíðarfjall ...
Hversu mikil tík er þessi pólitík?
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hversu mikil tík er þessi pólitík?
Silvía Rut Ástvaldsdóttir skrifar: Það er eitt að fylgjast með því sem er að gerast í heiminum, hafa áhuga á pólitík og jafnvel blanda sér í umræðuþræ...
70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“
📅 23.10.2026 👁️ 1
70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“
Þess er minnst í dag að 70 ár eru liðin frá því að hópur flóttamanna frá Ungverjalandi kom til Íslands. Þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem Íslendi...
Aukið öryggi í Mjódd: Færri felustaðir og gegnsæ strætóskýli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Aukið öryggi í Mjódd: Færri felustaðir og gegnsæ strætóskýli
Mjódd er fjölfarnasta og stærsta strætóskiptistöð landsins og um hana fara meira en fjórar milljónir farþega árlega.Ítrekað hefur verið ráðist á fólk ...
Barátta George og Amal Clooney í svefnherberginu
📅 23.10.2026 👁️ 3
Barátta George og Amal Clooney í svefnherberginu
Leikarinn George Clooney, sem sló í gegn í þáttunum ER, var lengi draumaprins margra kvenna, en svo virðist sem það sé enginn dans á rósum að deika rú...
„Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ - Vísir
Mikill áhugi sé á veiðunum. „Það hefur verið talsverð fjölgun af nýjum tilvonandi veiðimönnum sem hafa verið að koma á námskeið og taka bæði skotvopna...
Mikilvægt að tryggja að gögn sem geymd séu í gagnaverum á Íslandi séu ekki „eitthvert rusl“
📅 23.10.2026 👁️ 2
Mikilvægt að tryggja að gögn sem geymd séu í gagnaverum á Íslandi séu ekki „eitthvert rusl“
Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir brýnt að móta stefnu og lagaramma utan um uppbyggingu og starfsemi gagnavera á Íslandi. Þ...
GP says she was forced out of job after raising concerns about gender treatment
📅 23.10.2026 👁️ 2
GP says she was forced out of job after raising concerns about gender treatment
The doctor says she faced a brutal investigation after she passed on complaints brought to her by other doctors.
Haukur segir þetta leyndarhyggju: „Algerlega óviðeigandi og ólýðræðisleg“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Haukur segir þetta leyndarhyggju: „Algerlega óviðeigandi og ólýðræðisleg“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að almenningur þurfi að vita hverju ný stjórn Landsvirkjunar ætlar að breyta, leyndarhyggja sé orðin að m...
Skiptar skoðanir eftir ummæli Loga: „Hverskonar nálgun er þetta eiginlega?“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir eftir ummæli Loga: „Hverskonar nálgun er þetta eiginlega?“
Tómas Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þekkingarleysi Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og greinilega...
Fá tækifæri til að læra íslensku í vinnunni
📅 23.10.2026 👁️ 4
Fá tækifæri til að læra íslensku í vinnunni
Svokölluð Málbrú hefur reynst vel við að auka íslenskukunnáttu starfsfólks hjúkrunarheimila sem er af erlendum uppruna. Þar lærir fólk orð sem tengjas...
Sigmar kominn aftur á þing
📅 23.10.2026 👁️ 4
Sigmar kominn aftur á þing
Sigmar Guðmundsson sneri aftur á þingið úr veikindaleyfi í dag. Varaþingmaður hans, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, víkur þar af leiðandi af þingi.Sigm...
Prince William reveals he once dreamed of being a DJ
📅 23.10.2026 👁️ 2
Prince William reveals he once dreamed of being a DJ
The Prince of Wales made a surprise appearance on the Graham Norton Show as part of a special edition to mark the Earthshot Prize.
Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta
📅 23.10.2026 👁️ 4
Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta
Vífill Karlsson og Sveinn Agnarsson lögðust yfir gögn frá árunum 2008-2024 fyrir nýja rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum um s...
Gríðar­legur við­búnaður í Frakk­landi vegna morgun­dagsins - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Gríðar­legur við­búnaður í Frakk­landi vegna morgun­dagsins - Vísir
The Guardian greinir frá þessu. Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, sagði að á meðal þeirra sem myndu taka þátt í aðgerðum lögreglu yrðu sér...
Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar
📅 23.10.2026 👁️ 4
Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar
Öryggisgalli í PHP-forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir ástandið enn alvarlegt en að hinn almenni borgari þur...
Gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans: „Höfum verið fórnarlömb eigin velgengni“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans: „Höfum verið fórnarlömb eigin velgengni“
Mikið af málum endurflutt á haustþingiÞingflokksformaður Samfylkingarinnar gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans á hægagang á þingmálum það sem af e...
Skýtur skökku við að hagræða í rekstri bókasafna í ljósi niðurstaðna PISA
📅 23.10.2026 👁️ 4
Skýtur skökku við að hagræða í rekstri bókasafna í ljósi niðurstaðna PISA
Það skýtur skökku við að borgin vilji hagræða í rekstri bókasafna þegar íslenskir nemendur koma verst út í lesskilningi á meðal OECD-ríkjanna samkvæmt...
Segir frá hvernig honum hefur tekist að halda sér edrú í 12 ár - Þetta gerir hann alla morgna
📅 23.10.2026 👁️ 4
Segir frá hvernig honum hefur tekist að halda sér edrú í 12 ár - Þetta gerir hann alla morgna
Leikarinn Josh Brolin hefur opinberað leyndarmálið við að halda sig edrú, en 12 ár eru liðin síðan hann tók þá ákvörðun að hætta að drekka áfengi. Bro...
Vilhjálmur prins kemur óvænt fram í The Graham Norton Show
📅 23.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur prins kemur óvænt fram í The Graham Norton Show
Vilhjálmur Bretaprins kemur fram í þætti The Graham Norton Show í dag, föstudaginn 23. október. Vilhjálmur sat í sófanum ásamt Cate Blanchett, Hannah ...
Sig­mar snýr aftur - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Sig­mar snýr aftur - Vísir
Þar af leiðandi mun Valdimar Breiðfjörð Birgisson fara af þingi, en hann kom inn sem varamaður í stað Sigmars. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Þar ke...
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir afköstum við lyfjaávísanir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir afköstum við lyfjaávísanir
Félög lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku hafa krafist svara frá Novo Nordisk um lista sem fyrirtækið heldur yfir það hversu mikið af lyfjum fyrirtæ...
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir því hversu líklegir þeir eru til að ávísa lyfjum
📅 23.10.2026 👁️ 4
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir því hversu líklegir þeir eru til að ávísa lyfjum
Félög lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku hafa krafist svara frá Novo Nordisk um lista sem fyrirtækið heldur yfir það hversu líklegir þeir séu til a...
Viðbúnaður í París vegna fyrirhugaðra mótmæla
📅 23.10.2026 👁️ 4
Viðbúnaður í París vegna fyrirhugaðra mótmæla
70 þúsund lögreglumenn og þjóðvarðarliðar hafa verið kallaðir til um helgina í Frakklandi.Frönsk stjórnvöld gera það til að tryggja öryggi íbúa vegna ...
Leggja línur í jörð vegna áflugs á rafmagnslínur
📅 23.10.2026 👁️ 4
Leggja línur í jörð vegna áflugs á rafmagnslínur
Víða hefur orðið rafmagnslaust á Suðurlandi í haust vegna áflugs álfta og gæsa á rafmagnslínur. Slíkt áflug, og rafmagnsleysi vegna þess, er ekki óalg...
Meghan did not let her father see her children to protect them
📅 23.10.2026 👁️ 4
Meghan did not let her father see her children to protect them
Today, without exactly using the word, Meghan claimed vindication.
Applications are opening for 42 affordable rental homes in Playa Blanca
📅 23.10.2026 👁️ 5
Applications are opening for 42 affordable rental homes in Playa Blanca
Applications for 42 public homes for affordable rent in Playa Blanca, Lanzarote, are due to open on Monday, 26 October, following publication of the a...
Pawel Bartoszek: Ekkert til í því að stirt samband sé milli þingmanna og ráðherra Viðreisnar
📅 23.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Ekkert til í því að stirt samband sé milli þingmanna og ráðherra Viðreisnar
Alþingi er óvenjulegur vinnustaður þar sem starfið gengur í raun út á átök. Átök í þingsal standa hins vegar ekki í vegi fyrir góðu sambandi pólitískr...
Balti og Sunn­eva brugðu sér af bæ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Balti og Sunn­eva brugðu sér af bæ - Vísir
Fjörður (Fjord) er nýjasta mynd rúmenska leikstjórans Cristians Mungiu og segir frá rúmensk-norskri fjölskyldu sem flytur til þorps við norskan fjörð ...
Melania Trump samræmdi vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu í bæ við víglínuna
📅 23.10.2026 👁️ 3
Melania Trump samræmdi vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu í bæ við víglínuna
Melania Trump samræmdi vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu í bæ við víglínuna Fréttin23. október 2026ErlentLeave a Comment Melania Trump. Moskva og Kí...
Bókasafnstillagan einungis til þess að bæta þjónustu við borgarbúa
📅 23.10.2026 👁️ 4
Bókasafnstillagan einungis til þess að bæta þjónustu við borgarbúa
Meirihluti menningarráðs Reykjavíkurborgar leggur til að framkvæmd verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns...
Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september
📅 23.10.2026 👁️ 4
Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september
Reykjaböðin voru formlega opnuð 5. september síðastliðinn en þau eru staðsett fyrir neðan Kamba í Hveragerði. 40 starfsmenn vinna í böðunum. Það hefur...
Um­ferðar­slys á Breiðholtsbrautinni - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Um­ferðar­slys á Breiðholtsbrautinni - Vísir
Þetta staðfestir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang. Slysið varð á brú á Bre...
Storm Austen: Strong winds and heavy rain batter southern UK
📅 23.10.2026 👁️ 2
Storm Austen: Strong winds and heavy rain batter southern UK
Millions remain under yellow weather warnings for wind and rain, with a second storm expected to hit Scotland and parts of northern England on Saturda...
Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið - Vísir
Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp þann 20. október og birtur í dag, segir að ágreiningur málsins hafi lotið að kröfu starfsmannsins um laun síðas...
Vincent Kompany: Bayern Munich manager taken to hospital after collapsing
📅 23.10.2026 👁️ 5
Vincent Kompany: Bayern Munich manager taken to hospital after collapsing
Bayern Munich manager Vincent Kompany is taken to hospital after collapsing as he watched the club's second team train on Friday.
Neysluvatn á Siglufirði í lagi
📅 23.10.2026 👁️ 4
Neysluvatn á Siglufirði í lagi
Niðurstaða úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á neysluvatni á Siglufirði sýna að enga E.coli-gerla er að finna lengur. Íbúar hafa ver...
Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að ekki sé hægt að tala um niðurskurð á loftbrú. Breytingin sé tímabær kerfisbreyting og eigi að auka fyrirs...
Staðfesta viðræður um vopnahlé í Oleshky
📅 23.10.2026 👁️ 5
Staðfesta viðræður um vopnahlé í Oleshky
Stjórnvöld í Úkraínu og í Rússlandi hafa staðfest að unnið sé að vopnahléi í bænum Oleshky í suðurhluta Úkraínu. Hvíta húsið lýsti því óvænt yfir í da...
Fyrrverandi frambjóðandi Pírata vill beita banvænu ofbeldi – annar vill svipta Trump-stuðningsmenn kosningarétti
📅 23.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi frambjóðandi Pírata vill beita banvænu ofbeldi – annar vill svipta Trump-stuðningsmenn kosningarétti
Fyrrverandi frambjóðandi Pírata vill beita banvænu ofbeldi – annar vill svipta Trump-stuðningsmenn kosningarétti Fréttin23. október 2026InnlendarLeave...
Má heita Lyngrós, Aragorn og Auróra
📅 23.10.2026 👁️ 4
Má heita Lyngrós, Aragorn og Auróra
Nöfnin Lyngrós, Aragorn, Auróra, Ragndís og Ksenía voru samþykkt með nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar. Það voru nöfnin Enzo, Flórentína og Bessý ei...
Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri kynningu á framkvæmdum og hönnun Hlemms sem lögð var fyrir umhverfis- og skipulagsráð á miðvikudag. Reykjavíkurborg hefur nú ...
Snorri Másson snýr aftur með Fréttir vikunnar
📅 23.10.2026 👁️ 4
Snorri Másson snýr aftur með Fréttir vikunnar
Snorri Másson snýr aftur með Fréttir vikunnar Fréttin23. október 2026InnlentLeave a Comment Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi ritst...
Bjargað úr sökkvandi bíl á síðustu stundu
📅 23.10.2026 👁️ 4
Bjargað úr sökkvandi bíl á síðustu stundu
Snör handtök og sundtök tveggja manna í Queensland í Ástralíu í gær urðu til þess að þeim tókst að bjarga manni frá drukknun. Sá hafði keyrt út á veg ...
Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“
Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans á Akureyri, formaður bæjarráðs og fyrrum fréttamaður á RÚV er ósáttur við breytingar sem gerðar verða á niðurgre...
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“
Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að það standi ekki til að loka bókasöfnum. Mikil umræða hefur skap...
Öldurnar til trafala þegar skútan bilaði á versta tíma - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Öldurnar til trafala þegar skútan bilaði á versta tíma - Vísir
Fram kom í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í dag að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefði kallað út Björgunarfélag Akraness á sjötta tím...
„Við erum virki­lega þreyttir“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Við erum virki­lega þreyttir“ - Vísir
Fram kom í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í dag að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefði kallað út Björgunarfélag Akraness á sjötta tím...