„Það er prjónabylting í gangi á Ís­landi“ - Vísir

„Það er prjónabylting í gangi á Ís­landi“ - Vísir

„Það er prjónabylting í gangi á Ís­landi“ - Vísir

„Það er prjónabylting í gangi á Íslandi, ekkert smá gaman,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún segir þúsundir hafa sótt uppskriftina og séu að prjóna peysuna en auk þess hafi verið skipulagðir fjölda viðburða í kringum verkefnið eins og samprjón, Facebook hópar, fjallganga og gítarpartý ..

„Það er allt í nafni SKJÓL-peysunnar og baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi. Prjónabúðir hafa verið duglegar að taka við sér. Þetta er einmitt það sem við viljum, samstaða í samfélaginu gegn ofbeldi og stuðningur við þolendur sýndur í verki. Við vonum að peysan sjálf eigi eftir að verða táknmynd þessarar samstöðu, þannig að þegar fólk gengur í henni þá er það að senda skilaboð,“ segir Linda Dröfn.

Tinna tekur undir það og segist reglulega fá gæsahúð yfir samstöðunni sem hefur myndast í samfélaginu.

„Maður sér á Facebook að fólk er að deila myndum af hvaða litum það er að velja í sínar peysur, er að spyrja alls kyns ráða og svo margir sem vilja hjálpa. Það er alveg ofboðslega fallegt að sjá allan þennan kærleika og hvatningu hvert í garð annars í prjónaskapnum,“ segir Tinna og að hún hafi heyrt af því að starfsfólk garnverslana sé að hringja hvert í annað til að athuga hvað sé til af garni.,

Úr kynningarefni herferðarinnar. Kvennaathvarfið

Samstaða í stað samkeppni

„Svo þar hefur myndast samstaða í stað samkeppni. Í garnverslunum voru þær á tímabili hættar að raða garninu í hilluna því það einfaldlega náðist ekki, kúnnarnir voru snöggir að grípa það,“ segir hún og að hún hafi sömuleiðis heyrt af fjölda skemmtilegra viðburða.

„Ég hef mikið verið spurð um hvort að peysan muni koma í barnastærðum og á ensku, fólk vill augljóslega taka þátt í þessu mikilvæga verkefni sem er algjörlega dásamlegt. Ég veit um nokkra prjónahópa á Norðurlöndunum sem eru að prjóna peysuna svo herferðin hefur náð út fyrir landsteina,“ segir Tinna og að sömuleiðis sé yndislegt að sjá að fólk sem ekki hefur prjónað áður sé spennt að læra. Hún segir tilvalið að grípa tækifærið og læra að prjóna.

„Það er nú tilvalið því það er einmitt það sem vefsíðan mín www.tinyviking.net snýst um, að kenna fólki að prjóna og sauma sín eigin föt og fylgihluti. Ég er að setja í loftið netnámskeið í hvernig maður prjónar peysuna SKJÓL,“ segir hún og að hún sé spennt að sjá allar peysurnar á fólki í sumar.

Selja í margar peysur á dag

Alma Ragnarsdóttir, verslunarstjóri Icewear garn, segir verslunina selja garn í peysuna oft á dag.

„Það hafa komið gusur inn af fólki að versla í peysuna, við erum að spá því að þetta verði „hittari“ sumarsins. Hún fer greinilega gríðarlega vel af stað í sölu og prjónarar eru spenntir að fitja strax uppá,“ segir Alma í samtali við fréttastofu.

Alma Ragnarsdóttir er spennt að sjá hvort einhverjir verði í peysunni á Prjónagleði á Blönduósi um helgina. Vísir/Vilhelm

Hún segir að venjulega dreifist sala í alls konar uppskriftir en það sé verið að selja í Skjól oft á dag og jafnvel sé sama manneskjan að kaupa í margar peysur.

„Það hefur gripið um sig algjört æði,“ segir hún og að í gær hafi til dæmis komið til þeirra lögreglumaður í prjónakaffi sem hafi verið að fitja upp á peysuna. Hann hafi viljað sýna stuðning með þessum hætti því hann þekkti til starfs Kvennaathvarfsins á sínum vettvangi innan lögreglunnar.

„Svo eru vinkonur og mæðgur að koma og sumar mömmur kaupa jafnvel í þrjár peysur og ætla að prjóna á alla í fjölskyldunni.Það er mikil stemning fyrir þessu.“

Margt í boði í lita- og garnvali

Alma segir að samkvæmt uppskrift sé peysan gefin upp fyrir miðlungs grófleika af garni en að uppgefin garntegund, sem er blásið garn, sé víðast hvar að verða uppseld. Hins vegar sé hægt að velja að prjóna hana úr alls kyns garni og þá sé mikilvægt að huga að prjónfestunni.

„Þetta er peysa sem verður prjónuð í allt sumar, hvort sem fólk velur að nota blásið garn eða hefðbundnara ullarband á borð við lopa eða aðra ull. Þá má alltaf bæta silki-mohair við sem gerir flíkina bæði mýkri og endingarbetri,“ segir Alma

Garnið sem hægt er að nota í peysuna. Vísir/Vilhelm

Hvað varðar litina segir hún flesta velja andstæða liti, til dæmis fölgrátt eða ljósbrúnt í grunninn og skærari lit í munstrið. Litir eins og skærbleikur, appelsínugulur, fjólublár og mintugrænn séu mjög vinsælir. Þá séu samt alltaf einhverjir sem velja mildari liti en það er jú galdurinn við prjónið að hver og einn getur komið með sína eigin útfærslu

„Það er svo skemmtilegt við prjónið að þú getur gert þetta svolítið að þínu,“ segir hún.

Alma segir að í Icewear og víða annars staðar sé veittur afsláttur af garni í peysuna og það sé stuðningur garnbúðanna við verkefnið. Peysan sé „garnfrek“ og því geti kostað dálítið að kaupa í hana. 

Sjálf er hún að fara að fitja uppá peysunni um helgina og hlakkar mikið til að fara á Prjónagleðina á Blönduósi og sjá hvort ekki megi sjá einhverja skarta peysunni þar. Konur leggi mikið upp úr því að mæta í sínum flottustu peysum á hátíðina og þetta sé sannarlega vettvangur prjónara til að sýna sig og sjá aðra

„Ég hlakka rosalega til að sjá hvort það verði ekki eitthvað fólk í peysunni. Ég geri fastlega ráð fyrir því. Það verður fyrsti vettvangurinn til að sýna sig fyrir þá sem eru fljótir að fitja upp á og fljótir að prjóna,“ segir hún að lokum.

Hvetja kvenfélagskonur til að prjóna 

Eins og kom fram að ofan er búið að skipuleggja fjölda viðburða í tengslum við vitundarvakninguna. Þorbjörg Skúladóttir, formaður Kvenfélagsins í Kjós, segir konurnar hafa fengið áskorun um að kaupa uppskriftina í fjáröflunarskyni hana hverri konu í félaginu.

„Við erum 35 og við höfðum samband við Kvennaathvarfið, keyptum 35 uppskriftir og deildum þeim á konurnar,“ segir hún og að þær séu rétt svo að byrja að prjóna. Þær hvetji önnur kvenfélög til að gera slíkt hið sama.

Peysan er prjónuð í allskonar litum en bleiki og blái liturinn eru vinsælir. Aðsendar

Ganga til Skálavíkur í peysunni

Sólveig Sigurðardóttir er vinkona Lindu Drafnar í Kvennaathvarfinu og ákvað að viðburður sem átti fyrst að vera fyrir vinkonuhópinn í Skálavík í Ísafjarðardjúpi ætti að vera stærri, í þágu athvarfsins.

„Hugmyndin er að ganga út í Skálavík. Við gerum það oft einu sinni á, eða svona yfirleitt einu sinni á sumri, svona nokkrar saman, þannig að ég var með þá hugmynd að við myndum bara labba, þeir sem vilja ganga auðvitað, að við bara hittumst og göngum út í Skálavík. En svo auðvitað bara þeir sem treysta sér ekki þar, þeir mæta bara þá.“

Gangan sé um einn og hálfur tími og í Skálavík verði grill og þar geti allir tekið þátt í samverustund sem vilja.

„Mér finnst það líka vera svona partur af þessu, að bara vera með samveru og fólk þurfi ekkert endilega að leggja út peninga en auðvitað er ég að hvetja til þess að styrkja athvarfið með því að kaupa uppskriftina og taka þátt“

„En bara hugmyndin er bara að koma bara með pylsur á grillið og að allir séu bara þarna í samveru og sýni samstöðu gegn ofbeldi.“

Um 150 manns hafa meldað sig á viðburðinn og fleiri velkomnir að sögn Sólveigar. Hún segir mikla stemningu í bænum fyrir peysunni.

„Ég fór í garnbúðina hérna, Klæðakot, en hún er að bjóða 30 prósenta afslátt hérna á Ísafirði af garninu í peysuna og ég ætlaði að kaupa í viðbót og hún sagði bara: „Það er bara eins og sprengja svona, það er bara allt búið í búðinni og ég er bara að bíða eftir meira garni.“ Það eru allir að prjóna.“

Sólveig og Linda í Skálavík. Þar verða þær aftur í sumar. Aðsend

Vilja styðja Kvennaathvarfið

Sólveig telur þessa samstöðu tengjast bæði prjónaskapnum og málefninu.

„Prjónaáhuginn er náttúrulega mikill bara, það hefur aukist mikið að fólk sé að prjóna. En ég held að það sé líka athvarfið. Auðvitað að við séum að sýna samstöðu og mér finnst þetta,

„Mér fannst svo fallegt líka þessi, þetta nafn á peysunni, Skjól, að veita skjól og þess vegna kom líka nafnið bara já, heyrðu, Skjól í Skálavík. Við höfum það þar og Skálavík er svona einhvern veginn svona skjól líka, skjólið okkar.“

Dásamlega fallegt í Skálavík. Aðsend

Hún segir afar fallegt í Skálavík á þessum árstíma og er spennt að taka á móti fólki í peysunni í ágúst. Sjálf er hún byrjuð á peysunni í bláum og bleikum lit.

„Ég er nefnilega dálítið bleik og hugsaði að ég ætlaði að gera bláa núna og keypti svo gult í rendurnar. Svo segir dóttir mín við mig: „Mamma, ert þú að gera svona Grindavíkurpeysu?“ segir hún hlæjandi og hún hafi þá ákveðið að skipta og línurnar í peysunni séu bleikar núna.

„Þannig að ég hætti við og nú er ég með tvo bleika í rendurnar, ljósbleikan og dökkbleikan, og var ánægðari með það.“

#gangi #prjónabylting #vísir #íslandi #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262893752d/-thad-er-prjonabylting-i-gangi-a-islandi-

📰 Aðrar fréttir

Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 2
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 2
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 2
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 2
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 3
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
📅 22.10.2026 👁️ 2
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvör...
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
📅 22.10.2026 👁️ 2
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu...
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavé...
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin m...
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
📅 22.10.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu á...
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
📅 22.10.2026 👁️ 2
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
Journalist Will Murray describes how he and a bystander saved an SUV driver from his vehicle.
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og...
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
📅 22.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
The friend of a woman claiming to have been raped by Russell Brand says she said he was "quite aggressive".
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 3
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
📅 22.10.2026 👁️ 2
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
He says he found treasure in his attic where the collection had been stored for 15 years.
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 3
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 3
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 4
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 4
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 4
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 4
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...