Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir að nokkuð margar kvartanir hafi borist til nefndarinnar vegna auglýsinga Smáríkisins, sem meðal annars hafa verið sýndar í Ríkissjónvarpinu og þá meðal annars í kringum leiki Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem nú stendur yfir.Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Elfa Ýr það mat Fjölmiðlanefndar að þær auglýsingar sem hafi verið tilkynntar séu ekki skýr brot á lögum sem banni áfengisauglýsingar.
„Það er ekki óheimilt að auglýsa verslun eða eitthvað svoleiðis ef þú ert ekki að auglýsa vörumerkin sem eru ólögleg“