Hryssan Hugsýn frá Ketilsstöðum er nú hæst dæmda hryssa landsins frá upphafi kynbótadóma en hún fékk meðal annars einkunnina tíu fyrir samstarfsvilja og níu komma fimm fyrir tölt og fegurð í reið í kynbótadómi í gær.
Hugsýn er sex vetra og ræktuð af þeim Bergi Jónssyni og Olil Amble, sem búa á Syðri-Gegnishólum í Flóahreppi með sín hross. Þar er Elín Holst, knapi og við tamningar líka en hún sýndi Hugsýni í kynbótadómi í Hafnarfirði og fékk ótrúlega háar einkunnir, til dæmis 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið, 8,63 fyrir sköpulag, 9,18 fyrir hæfileika og 10 fyrir samstarfsvilja og endaði með aðaleinkunnina 8,99. Hugsýn er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum.
„Ég er mjög stoltur af henni, þetta er virkilega flott. 9,5 fyrir tölt og 9 fyrir skeið er bara frábært að það skuli vera hægt að sameina í einu og sama hrossinu svona frábæra eiginleika. Svona gripur á að fara sem fyrst í ræktun,” segir Bergur.
En hvað segir eigandi Hugsýnar, hvernig er best að lýsa henni?
„Bara algjör gæðingur, bara svakalega gott geðslag, ég veit ekki bara hvað ég á að segja, ævintýrameri.”
Hvað er best við hana?
Töltið, það er mjög gott og vilji hennar. Hana langar alltaf að gera allt sem maður biður hana um. Það er eiginlega allt gott við hana finnst mér, alveg draumameri,” segir Elin.
Hugsýn hefur ekki átt folöld en stendur það til?
„Það kemur, það verður að halda svona drottningu.“
Næst á dagskrá hjá Elinu og Hugsýn er landsmót hestamanna á Hólum í sumar þar sem þær munu keppa í sex vetra flokki. Á hún ekki eftir að sigra þar?
„Það væri gaman en maður veit aldrei, það verða fullt af góðum hrossum,” segir Elin.