Atvikið átti sér stað í norðanverðum Hvalfirði, ekki löngu eftir að komið er úr Hvalfjarðargöngunum á norðurleið. Ekki er útlit fyrir að neinn hafi hlotið skaða af.
Á myndbandi má sjá að flutningabíllinn er á vegum Íslenska Gámafélagsins og var að flytja einhvers konar lífrænt efni.
Afar vindasamt hefur verið á landinu norðvestanverðu síðustu daga.
Fréttin er í vinnslu.